Lögmaður Manafort greindi lögmönnum Trump frá vitnisburði hans Kjartan Kjartansson skrifar 28. nóvember 2018 19:29 Paul Manafort, þegar hann stýrði framboði Trump. Vísir/Getty
Rudy Giuliani, einn lögmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta, staðfestir að lögmaður Pauls Manafort, fyrrverandi kosningastjóra hans, hafi unnið með þeim og veitt þeim upplýsingar um vitnisburð hans til sérstaka rannsakandans sem kannar meint samráð framboðs Trump við Rússa. Fyrirkomulagið er sagt afar óvenjulegt og hafa valdið kergju hjá saksóknurunum. Manafort samþykkti að veita Robert Mueller, sérstaka rannsakanda dómsmálráðuneytisins, upplýsingar eftir að hann var sakfelldur fyrir fjársvik og samsæri í september til þess að reyna að milda refsingu sína. Manafort var kosningastjóri Trump þar til í ágúst árið 2016 þegar hann steig til hliðar í skugga ásakana um að hann hefði þegið milljónir dollara frá fyrrverandi forseta Úkraínu. Saksóknarar Mueller létu dómstól vita á mánudag að Manafort hefði brotið gegn samkomulaginu með því að ljúga ítrekað um „ýmis málefni“. Þeir telja sig því ekki bundna af því að biðja dómarann í máli Manafort um að sýna honum mildi eins og samkomulagið kvað á um. Lögmenn Manafort segja hann aðeins hafa sagt sannleikann. Nú greinir New York Times frá því að lögmaður Manafort hafi ítrekað veitt lögmönnum forsetans upplýsingar um samtöl skjólstæðings síns við saksóknara Mueller eftir að hann samdi við þá um samstarf. Þannig hafi Kevin Downing, lögmaður Manafort, sagðt Giuliani að saksóknarnir hefðu eytt miklu púðri í að ganga á Manafort um hvort að Trump hefði vitað af fundi Manafort, sonar síns og tengdasonar með Rússum í Trump-turninum í júní árið 2016. Rússarnir höfðu lofað Trump yngri skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton, mótframbjóðanda föður hans. Trump yngri staðhæfir að faðir sinn hafi ekkert vitað af þeim fundi. „Hann vill að Manafort bendli Trump við glæp,“ segir Giuliani um Mueller við New York Times. Hann heldur því fram að fyrirkomulagið sé eðlilegt þar sem það hjálpi lögmönnum Trump að móta vörn sína fyrir hann.Rudy Giuliani, lögmaður Trump, segir samtölin við lögmann Manafort hafa verið afar gagnleg til að glöggva sig á hvaða stefnu rannsókn Mueller tæki.Vísir/APNýttu sér upplýsingarnar í áróðursstríði gegn rannsókninni Lögspekingar sem blaðið ræddi við telja að engin lög hafi verið brotin með samtali lögmannanna. Þeir velta hins vegar upp möguleikanum að með því freisti Manafort þess fá forsetann til að náða sig á sama tíma og hann reynir að fá saksóknarana til að milda refsingu sína. Málið hefur hins vegar skaðað samskipti lögmanna Manafort og saksóknaranna. Trump og bandamenn hans virðast hafa nýtt sér upplýsingarnar frá lögmönnum Manafort í áróðursstríði gegn Mueller-rannsókninni. Þannig hefur forsetinn ítrekað tíst ásökunum um að saksóknararnir komi illa fram við og „rústi lífum“ fólks. „Bíðið þar til það kemur fram hversu hræðilegir og grimmir þeir eru í meðferð á fólki, eyðileggja líf þess fyrir að neita að ljúga,“ tísti Trump í gær. Farið ofan í saumana á samskiptum við Wikileaks Enn jókst á vandræði Manafort þegar breska blaðið The Guardian fullyrti í gær að han hefði átt leynilega fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, meðal annars skömmu áður en vefurinn birti fjölda tölvupósta sem rússneskir hakkarar stálu frá Demókrataflokknum og kosningastjóra Clinton árið 2016. Manafort, Assange og Wikileaks hafa hafnað þeirri frétt algerlega. Kristinn Hrafnsson, fyrrverandi talsmaður Wikileaks, sagðist í gær undirbúa málshöfðun gegn The Guardian vegna umfjöllunarinnar. Fleiri bandamenn Trump hafa verið bendlaðir við Wikileaks undanfarið. Saksóknarar Mueller hafa meðal annars kannað hvort að Roger Stone, yfirlýstur pólitískur klækjarefur og óformlegur ráðgjafi Trump í kosningabaráttunni og til margra ára á undan, hafi fengið upplýsingar um birtingu tölvupósta demókrata fyrir fram.Roger Stone vann meðal annars fyrir Richard Nixon í kringum Watergate-hneykslið.Vísir/GettyWashington Post vitnar í drög að skjölum frá sérstaka rannsakandanum þar sem kemur fram að Jerome Corsi, hægrisinnaður rithöfundur og samsæriskenningasmiður, hafi látið Stone vita af því að Wikileaks ætlaði að birta gögn sem tengdust Clinton í ágúst árið 2016, um tíu vikum áður en póstarnir voru birtir. „Orðið er að vinur í sendiráði áformi tvær dembur í viðbót. Ein skömmu eftir að ég kem aftur. Annan í október. Áætlunin er að áhrifin verði mjög skaðleg,“ skrifaði Corsi í tölvupósti til Stone. Vísaði hann þar til Assange sem hefur hafst við í sendiráði Ekvadors í London til að koma sér undan yfirvöldum í Svíþjóð og síðar Bretlandi undanfarin ár. Corsi heldur því fram nú að hann hafi aldrei hitt Assange eða rætt við hann. Sakar hann saksóknara Mueller um að þrýsta á sig um að viðurkenna að hann hafi logið um samskipti við Wikileaks. Hann hafi einfaldlega gleymt þeim og ýkt hversu mikið hann vissi. „Ég er sannfærður um að minni mitt er rétt að ég hafi ekki haft heimildarmann sem kom mér í samband við Assange. Ég held í alvörunni ekki,“ segir Corsi við Washington Post. Stone hafnar því að hafa átt í samskiptum við Assange eða Wikileaks. Giuliani, lögmaður Trump, segir forsetann ekki reka minni til þess að hafa nokkru sinni rætt við Stone eða Corsi um Wikileaks.Segist ekkert hafa vitað af Wikileaks eða fundi með RússumBandaríska fréttastöðin CNN segist hafa fengið upplýsingar um svör Trump og lögmanna hans við tveimur spurningum saksóknara Mueller. Þeir féllust á að leyfa Trump að svara spurningunum skriflega. Ekki er þó talið útilokað að þeir reyni að knýja forsetann til að gefa skýrslu munnlega áður en yfir lýkur. Trump hafi sagt Mueller að hann hafi ekki vitað af fundi Manafort, Trump yngri og Jareds Kushner með Rússum í Trump-turninum fyrir tveimur árum og að Stone hafi ekki sagt honum frá því að Wikileaks ætlaði að birta tölvupósta demókrata. Í svörunum hafi verið fyrirvari um að að þau væru eftir besta minni forsetans.
Bandaríkin Donald Trump Ekvador Norðurlönd Rússarannsóknin Suður-Ameríka Svíþjóð WikiLeaks Tengdar fréttir Úthúðar The Guardian fyrir umfjöllun um meintan leynifund Assange og Manafort Kristinn Hrafnsson vandar The Guardian ekki kveðjurnar vegna fréttar um Julian Assange, stofnanda Wikileaks. 27. nóvember 2018 23:46 Mueller sakar Manafort um lygar Sérstaki rannsakandinn segir Manafort hafa brotið gegn samkomulagi sínu við saksóknara. 27. nóvember 2018 10:21 Segja Manafort hafa hitt Assange á leynifundum í London Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag, og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum, að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, Bandaríkjaforseta, hafi átt að minnsta kosti þrjá leynifundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks. 27. nóvember 2018 16:23 Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Fleiri fréttir Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi 169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Settu sprengjur í símboðana Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum „Það er hula yfir sólinni“ Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Stækkar herinn í þriðja sinn Verður kanslaraefni Kristilegra demókrata „Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Sjá meira
Úthúðar The Guardian fyrir umfjöllun um meintan leynifund Assange og Manafort Kristinn Hrafnsson vandar The Guardian ekki kveðjurnar vegna fréttar um Julian Assange, stofnanda Wikileaks. 27. nóvember 2018 23:46
Mueller sakar Manafort um lygar Sérstaki rannsakandinn segir Manafort hafa brotið gegn samkomulagi sínu við saksóknara. 27. nóvember 2018 10:21
Segja Manafort hafa hitt Assange á leynifundum í London Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag, og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum, að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, Bandaríkjaforseta, hafi átt að minnsta kosti þrjá leynifundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks. 27. nóvember 2018 16:23