Páfinn hefur áhyggjur af samkynhneigð presta Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2018 17:56 Frans páfi. AP/Alessandra Tarantino
Frans Páfi segir samkynhneigð meðal presta í kaþólsku kirkjunni vera „alvarlegt mál“ sem hann hefur áhyggjur af. Í viðtali vegna nýlegrar bókar sagði páfinn að samkynhneigð væri „í tísku“ og hvatti hann presta til að standa við skírlífseið þeirra.Samkvæmt BBC sagði páfinn einnig að kaþólska kirkjan yrði að vera kröfuhörð þegar kæmi að því að velja presta. Að þeir sem sjái um að þjálfa presta verði að tryggja að verðandi prestar sé „mannlega og tilfinningalega þroskaðir“ áður en þeir verða prestar að fullu.Páfinn bætti við að kirkjan, sem hann stýrir, væri andsnúin því að gera samkynhneigða menn að prestum og samkynhneigðar konur að nunnum. Það væri ekki pláss fyrir samkynhneigð í lífi presta og nunna. Árið 2013 kynnti Frans stöðu kaþólsku kirkjunnar varðandi samkynhneigð. Í stuttu máli snýst sú staða um að kynlíf samkynhneigðra væri synd en það að vera samkynhneigður væri það ekki. Presturinn Fernando Prado tók viðtal við Frans páfa í fóra tíma vegna bókarinnar; The Strength of Vocation. Bókin fjallar um erfiðleika þess að vera prestur og kemur út í næstu viku.
Evrópa Trúmál Mest lesið Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Innlent Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Innlent Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Innlent Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Innlent Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Innlent Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Innlent Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Innlent Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Innlent Meinað að heimsækja fjölskylduna því hann var skyndilega kominn á bannlista Innlent Fleiri fréttir Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Bjargaði túristum í vanda og laxeldi í Seyðisfirði mótmælt Sjá meira