Bæjarstjórinn í Árborg segir hugmyndir um vegtolla skárra en að ekkert sé gert. Með því að rukka 50 krónur á hvern bíl mætti borga nýja Ölfusárbrú á tólf árum að hans mati.
Hugmyndir um vegtolla er að finna í breytingatillögum á samgönguáætlun sem miðast að að veggjald verði tekið upp á öllum stofnbrautum út frá Reykjavík og öllum jarðgöngum landsins. Tillögurnar hafa þó ekki verið afgreiddar úr samgöngunefnd og er því óvíst hvernig þær munu endanlega líta út.
Lítið gjald fyrir aukið öryggi
Bæjarstjórinn í Grindavík segir þessa vegtollar lítið gjald fyrir bætt öryggi á lífshættulegum vegum þar sem framkvæmdir þola enga bið. Sá sem fer fyrir Grindavíkurbæ heitir Fannar Jónsson en hann segir bæjaryfirvöld hafa lagt á það megináherslu að auka umferðaröryggi á Grindavíkurvegi.
Sjá einnig: Tveir mánuðir milli banaslysa á sama vegarkafla
Hann er einnig hlynntur þessum hugmyndum verði þær til þess að bæta umferðaröryggi á Reykjanesbrautinni sem Grindvíkingar reiða sig á.
„Ef það þarf vegtolla til að fjármagna þetta og flýta fyrir framkvæmdum, þá er hægt að sýna þessu verkefni velvilja. Að sjálfsögðu er fólk almennt ekki hrifið af aukinni gjaldtöku en flestir vilja þó að þessum framkvæmdum verði flýtt eins og mögulegt er.“
Sagt hefur verið frá því í fréttum að veggjöldin verði tiltölulega lág, mögulega 140 til 150 krónur á hvern fólksbíl í hvert skipti með afslætti en einstakt gjald yrði talsvert hærra. Er reiknað með að veggjöldin gætu skilað yfir tíu milljörðum króna í ríkiskassann á ári. Það muni þó ráðast af útfærslu og fjárhæð.
Ekki allir sáttir upp á Skaga
Samkvæmt breytingartillögunni, sem samgöngunefnd hefur haft til umfjöllunar, þá er gert ráð fyrir að vegtollur verði tekinn upp á öllum stofnbrautum út úr Reykjavík; á Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. Einnig við öll jarðgöng á landinu en einnig er horft til þess möguleika að opna á veggjöld fyrir einstakar framkvæmdir. Hafa ber þó í huga að ekki er um endanlegar tillögur að ræða, og gæta þetta því tekið breytingum þegar þetta verður afgreitt úr nefndinni.Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar sendi frá sér ályktun í síðustu viku þar sem hugmyndum um vegtolla var fagnað. Heyra mátti þó á einhverjum Skagamönnum að þeir væru hreint ekki sammála þessum fögnuði bæjarstjórnarinnar og sögðu hana ekki tala fyrir hönd þeirra.

„Mikilvægt er að þessi nýju samgönguverkefni verði vel skilgreind og afmörkuð og flýtigjald afnumið um leið og verkefni lýkur og mannvirkið hverju sinni afhent Vegagerðinni eða ríkinu. Hinn valkosturinn felur í sér Samgönguáætlun með 500 milljóna króna hagræðingarkröfu þar sem stærstur hluti nauðsynlegra samgöngubóta er einfaldlega ekki á dagskrá,“ segir Sævar Freyr.
Ætla að tryggja jafnræði Skagamanna
Hann segir bæjarstjórnina ætla að kappkosta að tryggja jafnræði Skagamanna miðað við íbúa annarra landshluta verði þessi hugmynd að veruleika.„Til að mynda þegar kemur að ferðum til og frá Reykjavík. Þær hugmyndir sem eru uppi um gjaldtöku gefa til kynna að Skagamenn sem og aðrir landsmenn muni jafnframt spara verulega fjármuni vegna styttri vegalengda og betri vega t.d. með Sundabraut kjósi menn að nýta sér þá leið.“
Hann segir engan í sjálfu sér fagna gjaldtöku en skilningur flestra Skagamenn sé fyrir þeim auknu möguleikum sem felst í bættum samgöngubótum. „Enda höfum við verið í fararbroddi í slíkri hugsun í yfir 20 ár með Hvalfjarðargöngum og viljum nýta þá þekkingu áfram til sóknar á þessu sviði og tryggja að gjaldtakan skili sér öll í vegbætur. Þó veggjöld njóti ekki stuðnings allra Skagamanna þá hvetjum við fólk til að taka umræðuna og kynni sér möguleikana.“
12 ár að borga Ölfusárbrú með 50 króna gjaldi
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Árborgar, segir umræðuna um veggjöld vera blendna þar á bæ. „Þegar veggjöldin eru rædd sem valkostur við að fresta bráðnauðsynlegum vegaframkvæmdum árum saman finnst mér hins vegar vera töluvert fylgi við þessa aðferð,“ segir Gísli.
Hann minnir á mikilvægi þess að innheimtan verði sjálfvirk og nútímaleg þannig að gjaldhlið tefji ekki umferð. „Mér reiknast til að til dæmis nýja brú yfir Ölfusá væri hægt að greiða niður á 12 árum þó ekki væri innheimt hærra gjald en 50 krónur að meðaltali á bíl.
Fylgjandi svo lengi sem veggjaldið fer í vegi
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segist almennt fylgjandi því að skattar séu lækkaðir og fjármögnun hins opinbera verði meiri í formi gjaldtöku. Hann segir muninn á sköttum og gjaldtöku talsverðan því með gjaldtöku sé tryggt að greiðslan sem þú innir af hendi sé fyrir ákveðna þjónustu.„En þegar um skatta er að ræða þá er það alfarið háð ákvörðunum stjórnmálamanna hverju sinni hvað þú færð fyrir. Sem skattgreiðandi veist þú því ekkert hvort að skattarnir þínir fara í að reka sendiráð í Nýju Delí, fjölga aðstoðarmönnum ráðherra eða bæta þjóðvegi,“ segir Elliði í samtali við Vísi.
Heilt yfir er hann því fylgjandi að veggjöld verði tekin upp á vegum landsins.

Segir fólk vantreysta ríkinu
Umræðan í Ölfusi um veggjöldin, eins og víðast hvar í samfélaginu, er dálítið ómarkviss að mati Elliða.„Maður finnur það sterkt að fólk vantreystir ríkinu til að fara af ábyrgð með það fé sem myndi innheimtast og óttast að það fari í eitthvað allt annað en að bæta vegina. Hér sækja margir vinnu inn á höfuðborgarsvæðið og þeir velta eðlilega fyrir sér hversu mikil viðbótarkostnaðurinn verður. Allir sem sjá vilja vita þó að það er þörf á tug milljarða framkvæmdum hér allt í kring. Þannig er Þrengslavegurinn til dæmis löngu kominn á tíma. Mjög margir telja að veggjöld gætu verið leið til að tryggja framkvæmdir við þann mikilvæga kafla í vegakerfinu,“ segir Elliði.
Finnst umræðan í Hveragerði neikvæð
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði segir umræðu meðal Hvergerðinga um vegtolla frekar neikvæða. Hún segir þetta þó byggt á tilfinningu og segist setja það fram án ábyrgðar enda engin formlega könnun farið fram um málið. Í Hveragerði hefur verið mikil uppbygging og fjöldi fólks flutt til þessara svæða þrátt fyrir að sækja vinnu á höfuðborgarsvæðinu.Aldís segir að með því að leggja auknar álögur þennan hóp, þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins en sækja vinnu þangað, í andstöðu við hugmyndir sem hafa verið uppi á vegum ráðherra varðandi frekari uppbyggingu á þessum svæðum til að mæta húsnæðiseklu höfuðborgarsvæðisins.

Bíleigendur greiða nú þegar gjald
Mikilvægt sé að jafnræðis verði gætt á meðal landsmanna allra þegar kemur að fjármögnun á vegakerfinu og ekki verði gerður greinarmunur á því hvar þú ekur þegar kemur að innheimtu sértækra gjalda.„Mikilvægt er einnig að halda því til haga að bíleigendur greiða nú þegar mikla skatta til ríkisins í formi bifreiða- og eldsneytisgjalda. Til að byrja með mætti nýta þá fjármuni til uppbyggingar vegakerfisins áður en ný gjöld eru lögð á þennan sama hóp. Síðan má ekki gleyma því að innan sveitarfélaga landsins eru umfangsmikil vegakerfi og því má auðvitað líka spyrja sig að því hvort að sveitarfélögin í landinu ættu ekki líka að fá hlutdeild í þeim gjöldum sem lögð eru á bifreiðareigendur.“
Pollrólegur á Ísafirði þó umræðan sé ofsafengin
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segist pollrólegur yfir þessum hugmyndum. Hann vill fyrst af öllu sjá hvernig þetta verður útfært þegar samgöngunefnd hefur afgreitt þessar tillögur.„Umræðan er frekar ofsafengin eftir því sem ég hef heyrt. Hún er lituð af því að fólk veit takmarkað um útfærsluna og er duglegt við að gefa sér forsendur. Það eina sem ég get sagt fyrir mína parta er að ég er tilbúinn til að skoða allar leiðir ef þær fela það í sér að nauðsynlegum úrbótum í samgöngum á Vestfjörðum verður flýtt eða hrundið í framkvæmd.“

„Met það samt svo að menn leggist ekki alfarið á móti þessu en að sjálfsögðu eiga útfærslur eftir að líta dagsins ljós þannig að hægt verði að taka afstöðu til málsins“ segir Björn. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist ekki hafa myndað sér skoðun á málinu og bíður eftir að tillögurnar líti dagsins ljós.