Í tilkynningu frá Völku segir að með viðskiptunum sé Samherji orðinn einn af stærri hluthöfum Völku ásamt Helga Hjálmarssyni, stofnanda og framkvæmdastjóra Völku, Vogabakka ehf., Vindhamri ehf. og Fossum ehf. Samherij hafi lengi verið í samstarfi við Völku um tækjabúnað í landvinnslur félagsins hér á landi.
Haft er eftir Helga Hjálmarssyni, framkvæmdastjóra Völku, að það sé afar ánægjulegt að fá sterkan bakhjarl á borð við Samherja inn í eigendahóp Völku. „Við höfum unnið farsællega saman að tækniþróun í landvinnslu Útgerðarfélags Akureyrar undanfarin ár og gerðum nýverið stóran samning um aðkomu að búnaði í nýrri landvinnslu Samherja á Dalvík.“

Valka var stofnað árið 2003 og sérhæfir sig í hátæknilausnum í sjávarútvegi og hefur meðal annars verið leiðandi í þróun á vatnsskurðarvélum.