Þetta kom fram í vitnisburði dyravarðarins við aðalmeðferð í Shooters-málinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar sæta tveir menn ákæru fyrir líkamsárásir á staðnum eins og Vísir hefur fjallað um í morgun. Artur Pawel Wisocki er ákærður fyrir tvær líkamsárásir og Dawid Kornacki fyrir sinn hlut í árásinni á dyravörðinn sem gaf skýrslu.
Neitaði að setja drykk í plastglas
Dyravörðurinn lýsti því að hann og kollegar þeirra hefðu lent í erfiðum aðstæðum með fimm eða sex manna hóp á Shooters þetta kvöld. Allt hafi gengið vel þar til einn í hópnum hafi reynt að fara út af staðnum með glerglas. Hann hafi neitað að setja drykk sinn í plastglas þrátt fyrir ítrekuð tilmæli. Hann hafi ekki viljað gera það og honum því verið hent út.Pólverjarnir hafi verið ósáttir við framkomu dyravarðanna en sá sem bar vitni, sem sjálfur er af erlendu bergi brotinn, sagði þá hafa tjáð Pólverjunum að þeir hefðu ekkert á móti þeim. Þeir hafi neyðst til að óska eftir aðstoð af næsta veitingastað og mönnunum í framhaldinu verið vísað út.
Gestirnir hafi verið reiðir og haft í hótunum um að ætla að koma til baka. Það hafi gerst hálftíma síðar. Sjálfur hafi hann verið á klósettinu en kollegi hans og vinur, sá sem lamaðist, hafi kallað eftir aðstoð þegar hann sá þá nálgast staðinn.
Þeir hafi ráðist á þá við innganginn. Vinur hans hafi flúið inn og einn þeirra elt hann. Sjálfur hafi hann átt í átökum við hina þrjá og svo sá fjórði, Artur sem hljóp á eftir vini hans, snúið aftur.
„Hann lamdi mig aftan á hnakkann. Ég var umkringdur af fjórum mönnum sem voru allir að berja mig með öllum kröftum,“ hafði túlkur eftir dyraverðinum í dómsal.
Vissi ekki hvort hann væri á lífi eða ekki
Hann hafi reynt að komast í burtu og óska eftir aðstoð en ekki komist. Árásarmennirnir hafi á endanum yfirgefið svæðið. Þá hafi hann farið inn á staðinn og séð vin sinn og kollega liggjandi á gólfinu. Hann hafi verið sjokkeraður þegar hann sá vin sinn á gólfinu og vissi ekki hvort hann væri á lífi eða ekki. Hann hafi reynt að tala.„Geturðu hjálpað mér því ég er að deyja,“ hafði dyravörðurinn eftir vini sínum sem lamaðist fyrir neðan háls.

Hann trúi ekki að þetta hafi gerst. Hinn dyravörðurinn sé honum sem bróðir og hans besti vinur.
Dyravörðurinn fer fram á 2,5 milljónir króna í miskabætur frá ákærðu Artur og Dawid vegna árásarinnar.
Verjendur ákærðu spurðu dyravörðinn út í áverka sem hann hefði fengið. Lýsti dyravörðurinn þeim sem töluverðum en benti Bjarni Hauksson, verjandi Dawid, á að í læknisskýrslu kæmi fram að dyravörðurinn finndi bara til í andliti. Dyravörðurinn sagði aðra verki og ávarka hafa bæst við eftir læknisskoðunina. Sækjandi spurði dyravörðinn hvort læknir hefði ávísað honum einhverjum lyfjum. Dyravörðurinn sagðist hafa tekið svefnlyf vegna erfiðleika með svefn. Þá hefði hann ekki pælt mikið í eigin verkjum á sínum tíma enda aðallega verið með hugann við afleiðingarnar hjá vini sínum.
Dómþinginu var í framhaldinu frestað til klukkan 14. Skýrslutaka yfir dyraverðinum sem lamaðist fyrir neðan háls verður tekin á Grensásdeild, Endurhæfingardeild Landspítalans fer fram í hádeginu. Fjölmiðlar fá ekki að vera viðstaddir. Skýrslutaka yfir öðrum vitnum fer fram eftir klukkan 14.