Vegum var víða lokað í gær vegna óveðurs en vegurinn um Þrengsli er nú einnig opinn og sömu sögu er að segja af Mosfellsheiði. Vegurinn um Öræfi milli Gígjukvíslar og Jökulsárlóns hefur einnig verið opnaður.
Á Lyngdalsheiði og Þingvallavegi er þó enn lokað en unnið er að mokstri. Nánari upplýsingar um færð á vegum má nálgast á vef Vegagerðarinnar.
Frystir í kvöld
Í dag má svo búast við norðaustanátt, víða 13-20 m/s, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Búast má við snjókomu eða éljum, einkum um landið austanvert, en þurrt að kalla suðvestanlands. Þá kólnar með deginum en frost verður frá 0 til 5 stigum í kvöld.Á morgun verður áfram norðaustanátt 8-15 m/s og él fyrir norðan og austan en léttskýjað suðvestanlands. Frost verður 0 til 8 stig. Svipað veður verður áfram á föstudag og laugardag en á sunnudag gengur norðanáttin líklega niður.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag og föstudag:Norðaustan 8-15 m/s og él, en léttskýjað SV-til á landinu. Frost 0 til 8 stig og heldur kaldara á föstudag.
Á laugardag:
Norðan 10-18, skýjað og snjókoma eða él N- og A-lands. Kalt áfram.
Á sunnudag:
Minnkandi norðanátt og léttskýjað á S- og V-landi, en stöku él NA-lands. Talsvert frost.
Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt SV-til á landinu, fer að snjóa undir kvöld og dregur úr frosti. Hægari vindur N- og A-lands, þurrt og áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda, hiti 0 til 5 stig.