Skoðun

Vöknum

Högni Egilsson skrifar
Í fyrradag lýsti Lewis Hamilton, meistari í formúluakstri 1, yfir hneykslun sinni á hvalveiðum Íslendinga á Instagram og gefur upp margar greinargóðar ástæður. Nú þegar hefur yfir milljón sinnum verið horft á þetta myndband og þúsundir hafa gert athugsemdir. Þessi þróun á ekki eftir að hætta. Alþjóðleg jarð umönnunarvakning er að eiga sér stað í heiminum og ef við sendum ekki sterk skilaboð strax um að afturkalla framlengd lög um hvalveiðar þá er okkar stærsti iðnaður í mikilli hættu. Þá getum við auk þess átt von á að útf lutningur á fiski (og öðrum vörum) verði lítill sem enginn. Þetta er grundvallarspursmál.

Okkar góða orðspor er nýtt og brothætt og getur því horfið jafnskjótt og það varð til. Við höfum engar tölur eða kannanir sem gera grein fyrir því að þetta hafi aftrað ferðamönnum frá því að koma til íslands. Aftur á móti höfum við skýr merki og teikn á lofti um það að hvalveiðar skaði ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Það þarf ekki nema að gúgla: iceland cnn, eða hvaða stóra alþjóðlega fjölmiðil sem er, til að sjá greinar og myndir um hrottalega grimmd við hvaladráp sem fara eins og eldur í sinu á netinu. Þeir sem skrifa greinargerð eða skýrslu sem segir eitthvað annað eru ekki starfi sínu vaxnir og ættu að víkja umsvifalaust. Það að háskólasamfélagið gefi þetta út er hreinasta hneisa. Hér eru nokkrir punktar:

1. Tap hefur verið á hvalveiðum, bæði á hrefnu og langreyði, alla öldina. Þær eru því ekki efnahagslega sjálf bærar og í raun tilgangslausar.

2. Nýjar rannsóknir á hvölum sýna að þeir gegna margvíslegu líffræðilegu hlutverki og næra heilu vistkerfin í sjónum. Engin dýr á jörðinni binda koltvísýring jafn mikið og hvalir.

3. Innan við 3% af fæðu langreyða er fiskur. Hafró hefur gefið það út að núverandi hvalveiðar hafi engin áhrif til eða frá á fiskistofna. Hugmyndir um að hvalveiðar séu til að skapa manngert jafnvægi standast alls ekki.

4. Stærstur hluti heimsins er á móti þessum veiðum og allar helstu viðskiptaþjóðir Íslands.

5. Einn maður í heiminum hefur leyfi til að veiða langreyðar. Kristján Loftsson hefur í krafti eigna sinna, umsvifa og fjármagns tangarhald á íslenskum stjórnmálamönnum og vefur þeim um fingur sér. Hvalveiðar Íslendinga, sem eru hvalveiðar eins manns, grundvallast því á spillingu og ótta við sjónarmið útlendinga.

6. Hvalveiðar eru mesti „brand killer“ sem Íslendingar hafa komið fram með á þessari öld.

Hér er augljóslega um að ræða brýnt samfélagslegt vandamál sem við höfum ekki þorað að horfast í augu við. Það er að auki morgunljóst að þetta er vitnisburður um spillingu af versta tagi, viðskiptajöfur og stór hagsmunaöf l eru að kaupa sér aðgerðir stjórnvalda til að maka krókinn. Uppskrift að ólígarkasamfélagi að hætti Ameríkana sem við eigum auðvelt með að hneykslast á en er að verða til beint fyrir framan nefið á okkur.

Við getum gert betur. Svo miklu betur. Það krefst styrks að standa hvert með öðru og þetta er einfalt mál sem varðar okkur öll. Mannúð og meðvitund fyrir jörðinni, en líka veraldlegur auður sem við þurfum fyrir framtíð okkar. Afnám hvalveiða er litla þúfan sem veltir þunga hlassinu. Fórnum ekki hagsmunum Íslendinga fyrir hagsmuni örfárra. Krafturinn býr í fólkinu. Vöknum.

„.. ástin grær

rís roði

eða er það kannski saltur

morgunblær

blámi syngur með rámri rödd

og minnir okkur á

að við erum illa stödd

kannski af því að í okkur

búa vondar kenndir

svartar taktfastar

hugans

myndir..“

högni




Skoðun

Sjá meira


×