Maðurinn sem lögregla handtók á skemmtistaðnum Dubliners um helgina var yfirheyrður á mánudag. Hann hafði áður ógnað starfsfólki á hóteli Radisson með hnífi, auk þess að stela þar áfengi og öðru smálegu.
Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi, segir að maðurinn hafi rofið skilorð með framferði sínu og því verið fluttur á Hólmsheiði. Þar mun hann afplána tvo mánuði af eldri dómi. Dómur vegna atvikanna í miðbænum í fyrrakvöld mun svo bætast við þá refsingu.
Guðmundur Páll segir, spurður hvort yfirheyrsla hafi varpað ljósi á meiningar mannsins, að hann hafi einfaldlega verið í vímuefna- og ölvunarástandi.
