Eitraði samlokur samstarfsmanna og hlaut lífstíðardóm Andri Eysteinsson skrifar 8. mars 2019 23:21 Talsmaður dómstóla í Norðurrín-Vestfalíu Phil Gabler, ræðir hér við fjölmiðla. Getty/Friso Gentsch
Þýskur karlmaður, Klaus O, hefur verið dæmdur til lífstíðarfangelsisvistar fyrir að hafa eitrað fyrir þremur vinnufélögum sínum, einn þeirra féll í dá og hinir tveir glíma við alvarlegar skemmdir á nýrum. Sky greinir frá. Samkvæmt þýskum réttarhefðum er eingöngu greint frá fornafni og upphafsstaf mannsins og því er eingöngu greint frá honum sem Klaus O. Klaus O er 57 ára gamall og vann í verksmiðju í bænum Schloß Holte-Stukenbrock í þýska sambandsríkinu Norðurrín-Vestfalíu. Klaus ákvað að tjá sig ekkert fyrir rétti og því óljóst hvert markmið hans var. Við húsleit á heimili hans fannst heimatilbúin tilraunastofa og fjöldi hættulegra efna. Þeir tveir sem hlutu nýrnaskaða, annar 27 ára og hinn 67, eiga nú í aukinni hættu á að fá krabbamein en Klaus eitraði fyrir þeim með blý og kadmín blöndu en kadmín er einmitt talið krabbameinsvaldandi. Sá þriðji, 23 ára gamall lærlingur féll í dá og hlaut varanlegan heilaskaða en Klaus eitraði fyrir honum með kvikasilfri. Upp komst um Klaus þegar litið var á öryggismyndavélar, en þar sást hann strá dufti á samlokur á kaffistofu fyrirtækisins. Dómarinn, Georg Zimmermann, sagði við réttarhöldin að brot hans væri jafn alvarlegt og morð.
Þýskaland Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira