Körfubolti

Úrslitakeppni kvenna hefst í Blue-höllinni í Keflavík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í Keflavík verða í sviðsljósinu í fyrsta leik úrslitakeppni kvenna í ár.
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í Keflavík verða í sviðsljósinu í fyrsta leik úrslitakeppni kvenna í ár. Vísir/Vilhelm
Körfuknattleikssamband Íslands hefur ákveðið leikdaga og leiktíma fyrir undanúrslit Domino´s deildar kvenna í körfubolta en deildarkeppninni lauk í gær.

KR-konur voru fjórða og síðasta liðið til að tryggja sig inn í undanúrslitin og fá að launum það verkefni að glíma við deildarmeistara Vals.

Úrslitakeppnin hefst þó á hinni viðureigninni sem er á milli Keflavíkur og Stjörnunnar. Fyrsti leikurinn er 2. apríl í Blue-höllinni í Keflavík en daginn eftir hefst hitt einvígið með leik Vals og KR í Origo-höllinni á  Hlíðarenda.

Fyrstu þrír leikirnir í einvígunum fara fram á sitthvorum tíma en leikur fjögur og fimm verða á sama degi. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér sæti í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn.

Hér fyrir neðan má alla leikina  í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna.

Keflavík (2) - Stjarnan (3)

Leikur 1 – 2. apríl – Keflavík-Stjarnan kl. 19:15

Leikur 2 – 6. apríl – Stjarnan-Keflavík 20:00

Leikur 3 – 10. apríl – Keflavík-Stjarnan kl. 19:15

Leikur 4 – 14. apríl – Stjarnan-Keflavík Leiktími ákveðinn síðar

Leikur 5 – 17. apríl – Keflavík-Stjarnan Leiktími ákveðinn síðar

Valur (1) - KR (4)

Leikur 1-  3. apríl – Valur-KR kl. 19:15

Leikur 2 – 7. apríl – KR-Valur kl. 19:15

Leikur 3 – 11. apríl Valur-KR kl. 19:15

Leikur 4 – 14. apríl KR-Valur Leiktími ákveðinn síðar

Leikur 5 – 17. apríl Valur-KR Leiktími ákveðinn síðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×