Fleiri oddaleikir í kvöld en í allri úrslitakeppninni í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2019 16:00 Það verður örugglega hart barist í Njarðvík í kvöld. Hér eru Ólafur Helgi Jónsson og Matthías Orri Sigurðarson í baráttu um boltann í síðasta leik. Vísir/Bára
Þetta er stórt kvöld fyrir Domino´s deild karla í körfubolta því í kvöld ræðst það hvaða tvö lið tryggja sér síðustu sætin í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Tindastóll, Þór Þorlákshöfn, Njarðvík og ÍR lifa enn í voninni um að komast í hóp fjögurra bestu liða landsins. Tindastóll og Njarðvík eru á heimavelli, komust bæði í 2-0 og fá því þriðja leikinn í röð til að klára dæmið. Lið Þórs og ÍR eru að spila upp á líf eða dauða í þriðja leiknum í röð. Í allri úrslitakeppninni í fyrra var „aðeins“ einn oddaleikur en það var oddaleikur Hauka og Keflavíkur í átta liða úrslitunum. Haukar unnu þar 72-66 sigur. Það eru því fleiri oddaleikir á dagskránni í kvöld en alla úrslitakeppnina í fyrra. Stöð 2 Sport mun sýna báða leiki kvöldsins í beinni. Leikur Tindastóls og Þórs hefst klukkan 18.30 en leikur Njarðvíkur og ÍR strax á eftir eða klukkan 20.15. Domino's körfuboltakvöld mun halda utan um allt kvöldið en útsendingin hefst klukkan 18.00. Domino's Körfuboltakvöld er á sínu fjórða ári en þetta verður í fyrsta sinn í sögu þess þar sem verða tveir oddaleikir á sama tíma. Síðast voru tveir oddaleikir á sama tíma fimmtudaginn 2. apríl 2015 en það var Skírdagur. Domino's Körfuboltakvöld var sett á laggirnar haustið eftir og hefur verið fastur liður á Stöð 2 Sport síðan. Það hafa ekki verið fleiri oddaleikir í átta liða úrslitunum í átta ár eða síðan það voru þrír í átta liða úrslitunum 2011. Þá þurfti bara að vinna tvo leiki til að komast í undanúrslitin. Allir oddaleikirnir fór fram 23. mars 2013 en aðeins einn þeirra var sýndur beint.Oddaleikjasaga liðanna í oddaleikjum kvöldsins(Tölur úr sögu úrslitakeppninnar 1984-2018) Njarðvík - 24. oddaleikur félagsins (14 sigrar, 9 töp) Tindastóll - 8. oddaleikur félagsins (3 sigrar, 4 töp) ÍR - 7. oddaleikur félagsins (1 sigur, 5 töp) Þór Þorl. - 3. oddaleikur félagsins (1 sigur, 1 tap) - Njarðvík er 7-1 í oddaleikjum í átta liða úrslitum - Tindastóll er 2-3 í oddaleikjum í átta liða úrslitum - ÍR er 1-4 í oddaleikjum í átta liða úrslitum - Þór Þorl. er 1-1 í oddaleikjum í átta liða úrslitumOddaleikir í úrslitakeppni karla síðustu ár: 2019 - 2 2018 - 1 2017 - 2 2016 - 2 2015 - 2 2014 - 1 2013 - 3 2012 - 2 2011 - 4 2010 - 4 2009 - 2Oddaleikir í átta liða úrslitum síðustu ár:(Fyrir 2014 þurfti bara að vinna tvo leiki) 2019 - 2 2018 - 1 2017 - 1 2016 - 1 2015 - 2 2014 - 0 2013 - 2 2012 - 2 2011 - 3 2010 - 2 2009 - 1Flestir oddaleikir félaga frá 2009: Stjarnan 8 (3-5) Keflavík 8 (2-6) Njarðvík 7 (3-4) KR 6 (5-1) Snæfell 6 (5-1) Grindavík 6 (3-3) Haukar 3 (2-1) Þór Þorl. 2 (1-1)
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira