Annar manndrápsstormur skellur á Mósambík Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. apríl 2019 07:45 Gríðarlegt tjón varð er Idai skall á Mósambík nú í mars. Nordicphotos/AFP
Að minnsta kosti einn er látinn eftir að hitabeltislægðin Kenneth gekk á land í Mósambík á fimmtudag. Frá þessu greindu stjórnvöld í Afríkuríkinu í gær. Þetta er annar mannskæði stormurinn sem hrellir Mósambík á einungis sex vikum en rúmlega þúsund fórust þegar Idai reið yfir Mósambík og nágrannalönd í síðasta mánuði. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hefur rúmlega þrjátíu þúsund manns verið gert að yfirgefa heimili sín vegna Kenneths. Talið er að sjötíu þúsund séu í bráðri hættu vegna stormsins. Meðalvindhraði Kenneths var 77,8 metrar á sekúndu þegar stormurinn gekk á land. Hann olli því gríðarlegu tjóni í norðurhluta ríkisins. Hús hrundu, tré rifnuðu upp með rótum og víða varð rafmagnslaust. Sjávarflóð vegna Kenneths hafa einnig valdið töluverðu tjóni. Mark Lowcock, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna á sviði mannréttindamála, sagði að þörf væri á öðru stórfelldu mannúðarátaki í Mósambík vegna stormsins. „Þetta er í fyrsta skipti sem tvær hitabeltislægðir ganga á land í Mósambík með svo stuttu millibili,“ sagði hann.
Birtist í Fréttablaðinu Mósambík Tengdar fréttir Annar fellibylur hrellir Mósambík Fellibylurinn Kenneth hefur gengið á land í Mósambík, sem enn er í sárum eftir að öflugur hvirfilbylur reið yfir landið í mars síðastliðnum. 26. apríl 2019 06:06 Mest lesið Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Innlent Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Erlent Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Erlent Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Innlent „Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Fleiri fréttir Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Bankaerfingi greiðir laun hermanna meðan ríkisstofnanir eru lokaðar Gómuðu aftur manninn sem þeir slepptu fyrir mistök Tveir handteknir vegna Louvre ránsins Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimmtán klukkustundir Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Ýjar að annarri atrennu að forsetaembættinu Vinstrikonan umdeilda vann sannfærandi sigur á Írlandi Fyrrverandi drottning Taílands er látin Segir Trump vilja nýtt „eilífðarstríð“ Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Fundu verksmiðju fyrir ólögleg þyngdarstjórnunarlyf Nota 130 milljón dala gjöf til að greiða hermönnum laun Sjá meira
Annar fellibylur hrellir Mósambík Fellibylurinn Kenneth hefur gengið á land í Mósambík, sem enn er í sárum eftir að öflugur hvirfilbylur reið yfir landið í mars síðastliðnum. 26. apríl 2019 06:06