Mótmælendur brutust fram hjá lögreglu og lokuðu gríðarstórri kolanámu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. júní 2019 10:29 Mótmælendur og lögregla hafa tekist á. Vísir/AP
Hundruð mótmælenda neita að yfirgefa gríðarastóra kolanámu í Rínarlandi í Þýskalandi í mótmælum gegn loftslagsbreytingum. Mótmælendur brutust inn í námuna á föstudaginn. BBC greinir frá. Lögregla hefur fyrirskipað að mótmælendurnir skuli yfirgefa námuna tafarlaust og segja að aðstæður í Garzweiler-námunni sé lífshættulegar. Mótmælendurnir sitja hins vegar margir hverjir sen fastast. Lögregla hefur þegar fjarlægt nokkra mótmælendur með valdi. Mótmælendurnir vilja með mótmælasetunni í námunni mótmæla aðgerðarleysi í loftslagsmálum. Yfirvöld í Þýskalandi hafa heitið því að Þýskaland verði kolefnishlutlaust fyrir árið 2050 en mótmælendurnir segja að það sé ekki nóg. Kjósendur hafa margir hverjir miklar áhyggjur af loftslagsmálum en málið er efst á blaði yfir áhyggjur sem kjósendur hafa af málefnum líðandi stundar í Þýskalandi.Lögregla reyndi að koma í veg fyrir að mótmælendur gætu komist í námuna og beitti hún meðal annars piparúða. Það var hins vegar ekki nóg til að stöðva mótmælendurnar sem brutust fram hjá lögreglu til þess að komast í námuna. Sumir þeirra sitja á járnbrautarteinum til að koma í veg fyrir að kol séu flutt á burt frá námunni. Mótmælin í námunni eru angi loftslagsmótmæla sem haldin voru í Aachen á föstudaginn þar sem á milli tuttugu til fjörtíu þúsund mótmælendur mótmæltu aðgerðarleysi í loftslagsmálum.Náman er gríðarstór, eins og sjá má.Vísir/AP
Loftslagsmál Þýskaland Mest lesið Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira