Björn Leví kom óánægju sinni á framfæri í ræðu sem hann hélt á þingfundi í dag. Á Alþingi er tekist á um endurskoðun á fjármálaáætlun. Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mælti fyrir meirihlutaáliti nefndarinnar en hann sagði breyttar aðstæður í efnahagslífinu kalla á endurskoðun. Í því samhengi nefndi hann kjarasamninga, loðnubrest og gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins WOW Air.
Willum Þór sagði veikleika í hringrás verklags um opinber fjármál gert það að verkum að ramminn sé of lítill.

Stjórnvöld hafi skapað ákveðna spennitreyju sem kristallist í því að áætlanir hafi alltaf verið „sett í gólf afkomumarkmiða stefnu og þannig hafa stjórnvöld skapað þessa spennitreyju sem birtist okkur síðan í því þegar við erum að ráðstafa hér inn á málefnasviðin.“
Hann telur breytingarnar sem meirihluti nefndarinnar mælir fyrir um séu til bóta. Willum telur fjármálastefnan sjálf eigi að vera sveigjanleg og að þingmenn ættu að nálgast fjármálaáætlunina með festu.
Björn Leví sagði að ákveðins misskilnings gæti í umræðunni.
Tilgangur fjármálaáætlunar ár hvert sé að endurmeta kostnað og forgangsröðun á þeim aðgerðum sem lagðar eru til í fjármálastefnu stjórnvalda. Það sé ekki hægt að „finna hjólið upp á nýtt á hverju ári fyrir fjármálaáætlun,“ segir Björn.
„Það sem vantar líka í þetta ferli sem var nefnt hérna, fjármálaáætlunar og fjárlagaferlið eru ársskýrslur ráðherra og langtímaskýrslan sem við höfum ekki ennþá fengið. Það vantar hana. Það vantar einmitt allt þetta í fjármálaáætlunina og fjárlögin sem gerir ársskýrslu ráðherra mögulega því án hennar, án markmiðanna og án forgangsröðunar vitum við ekkert hvort markmiðum stjórnvalda hefur verið náð nema þau séu sett fram á mjög skýran og skilmerkilegan hátt sem þau eru einmitt ekki gerð í fjármálaáætlun.“