Pepsi Max mörkin: Þegar Óli virðist hafa fundið lykilinn breytir hann öllu og maður skilur ekkert Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. ágúst 2019 09:30 Þjálfari FH virðist ekki vera með sitt besta lið á hreinu að mati Þorkels Mána vísir/vilhelm
FH stillti upp sínu besta miðvarðarpari á sunnudaginn að mati sérfræðinga Pepsi Max markanna á Stöð 2 Sport en óvíst sé hvort þjálfarateymi FH hafi áttað sig á því.FH vann sterkan 3-2 sigur á Val á Hlíðarenda á sunnudagskvöld og fór með sigrinum upp í þriðja sæti Pepsi Max deildarinnar. Ólafur Kristjánsson stillti upp Pétri Viðarssyni og Guðmanni Þórissyni í miðvarðarstöðunum í leiknum. „FH-ingarnir voru að spila með besta miðvarðarparið sem þeir eru með í boði,“ sagði sérfræðingurinn Þorkell Máni Pétursson í þætti gærkvöldsins. „Ég er skíthræddur um að fyrst ég segi þetta núna þá breyti Óli Kristjáns því í næsta leik og FH-ingarnir verða brjálaðir út í mig.“ „Þeir í þessum leik voru báðir frábærir, þeir vega upp hvorn annan og voru þarna eins og tveir stríðsmenn allan tímann. Þegar það gengur illa hjá FH-liðinu þá er Pétur Viðarsson alltaf maðurinn sem á að fara fyrst inn í liðið.“ Máni var hins vegar ekki sannfærður um að Ólafur Kristjánsson og félagar í þjálfarateyminu væru búnir að átta sig á því að þetta væri besta uppstillingin. „Oft finnst mér Óli alveg vera búinn að finna lykilinn að Nangijala eins og hann er að leita að og vera alveg með þetta. Þá hugsar maður að hann sé búinn að finna lykilinn og þetta verði frábært núna, en svo kemur hann í næsta leik og er búinn að breyta öllu og maður skilur ekkert hvert hann er að fara.“ Alla umræðuna úr Pepsi Max mörkunum má sjá hér að neðan.Klippa: Pepsi Max mörkin: FH búið að finna besta miðvarðarparið
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Í beinni: Fulham - Manchester United | Hvað gera djöflarnir í Lundúnum? Enski boltinn Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Arnar og Bjarki unnu golfmót Golf Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: KA - Fram | Hart barist á Akureyri Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Sjáðu mörkin: Borðtennis í Garðabæ og tveggja mánaða bið tók enda á Akureyri „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ „Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ „Vilji, kraftur, ákveðni og hugarfar hjá mínum stelpum“ Arna Eiríksdóttir: „Við töpuðum tveimur stigum í dag“ Uppgjör og vitöl: Stjarnan-FH 2-2 | FH að missa Blikana frá sér Uppgjör: Þór/KA-FHL 4-0 | Norðankonur í stuði á móti botnliðinu Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins „Af hverju er Tómas Orri ekki að að spila í Breiðabliki?“ Ólafur Kristjáns: Þá vitum við að hún er ekkert að grínast Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ KSÍ opið fyrir sjálfkrafa bönnum en reglubreyting ekki í vinnslu Valsmenn bara mannlegir? „Ég ætla ekki í eina einustu tæklingu hérna“ Tvö mörk með fyrstu tveimur snertingunum Stúkan birti samskipti dómara: „Ég þarf að taka stórar ákvarðanir“ Sjáðu Galdurinn á bak við það að KR komst úr fallsæti Sjá meira