Hiti verður 8 til 14 stig yfir daginn, hlýjast austanlands. Líkur eru á að það komi hellidembur úr skúrunum seinni partinn og á það við um mest allt landið, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Útlit er fyrir svipað veður á morgun, en kólnar í veðri fyrir austan og hlýjast verður um S-vert landið. Einnig bætir heldur í norðaustanáttina um vestanvert landið.
Á föstudag spáir norðlægri átt og rigningu víða um land, en þó þurrt suðvestanlands.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s með morgninum, hvassast NV-til, en bætir heldur í vindinn um landið V-vert á morgun. Víða rigning eða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 5 til 15 stig, mildast NA-lands í dag, en S-til á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:Norðan og norðaustan 5-13 m/s og dálítil rigning, en stöku skúrir suðvestanvert. Hiti 3 til 14 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á laugardag:
Norðan 5-10 m/s og skýjað með köflum, en dálítil væta nyrst á landinu og stöku skúrir við Suðurströndina. Hiti 2 til 11 stig, hlýjast suðvestantil.
Á sunnudag:
Vestlæg átt og þurrt og bjart veður, en lítilsháttar rigning norðvestantil. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast sunnanlands.
Á mánudag:
Suðaustan og dálítli rigning syðst á landinu, annars þurrt. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir austlæga átt og dálitla rigningu en þurrt norðanlands. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast suðvestantil.