Ljónin höfðu betur í Íslendingaslag, átta íslensk mörk hjá Kristianstad og sigurganga Viggó heldur áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 3. september 2019 18:41 Arnór Þór gerði fjögur mörk í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann sex marka sigur á Bergrischer í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ljónin voru fjórum mörkum yfir í hálfleik og sigurinn var aldrei í hættu. Lokatölur 30-24 en staðan í hálfleik var 16-12. Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Bergrischer en tvö af þeim komu af vítalínunni. Ragnar Jóhannsson skoraði ekki mark. Bergrischer með þrjú stig af sex mögulegum. Alexander Petersson komst ekki á blað hjá Ljónunum sem eru með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina. Gísli Þorgeir Kristjánsson náði ekki að skora í þriggja marka sigri Kiel, 30-27, á Ludwigshafen. Markahæstur hjá Kiel var Niclas Ekberg með sjö mörk en Kiel hefur unnið fyrstu tvo leiki sína. Viggó Kristjánsson gerði tvö mörk fyrir Leipzig sem vann þriggja marka sigur á Stuttgart á heimavelli, 31-28, eftir að hafa verið 14-13 yfir í hálfleik. Leipzig er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Silfurliðið í Svíþjóð, Kristianstad, vann sjö marka sigur á Lugi, 31-24, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Kristianstad var 13-10 undir í hálfleik en spýtti heldur betur í lófana í síðari hálfleik. Ólafur Guðmundsson gerði fimm mörk og Teitur Örn Einarsson þrjú. Árni Bragi Eyjólfsson komst ekki á blað og Ólafur Gústafsson var ekki í hóp KIF Kolding sem tapaði 35-30 fyrir Árósum í dönsku úrvalsdeildinni.
Danski handboltinn Sænski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið og Benóný Breki Sport Fleiri fréttir Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Sjá meira