Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:
1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti - (3. september)
5. sæti - Selfoss
6. sæti - Afturelding
7. sæti - Stjarnan
8. sæti - ÍR
9. sæti - KA
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir

Selfyssingar enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili en unnu átta af níu leikjum sínum í úrslitakeppninni. Selfoss tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með stórsigri á Haukum, 35-25, á heimavelli. Áralangt uppbyggingarstarf bar þá loks ávöxt. Nánast allir leikmenn í Íslandsmeistaraliði Selfoss eru uppaldir hjá félaginu.
Selfoss missti þjálfara sinn, Patrek Jóhannesson, og besta leikmann deildarinnar, Elvar Örn Jónsson, til Skjern. Hannes Jón Jónsson var búinn að semja við Selfoss en hætti við. Þjálfaraleitin gekk illa og eftir að hafa talað við nánast alla þjálfara landsins og suma oftar en einu sinni réðu Selfyssingar Grím Hergeirsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin ár.
Skarð Elvars hefur ekki verið fyllt enda vaxa sambærilegir leikmenn ekki á trjánum. Þá sleit varnarmaðurinn öflugi, Sverrir Pálsson, krossband í hné og verður ekkert með í vetur.
Selfoss stefnir áfram hátt en það verður þrautinni þyngri að verja Íslandsmeistaratitilinn.
Komnir/Farnir:
Komnir:
Einar Baldvin Baldvinsson frá Val
Magnús Öder Einarsson frá Gróttu
Farnir:
Elvar Örn Jónsson til Skjern Håndbold
Pawel Kiepulski til Wybrzeze Gdansk
Sverrir Pálsson, sleit krossband

Sóknarleikur Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk skoruð í leik - 1. sæti (28,6)
Skotnýting - 3. sæti (60,2%)
Vítanýting - 12. sæti (64,4%)
Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (59)
Stoðsendingar í leik - 3. sæti (11,0)
Tapaðir boltar í leik - 3. sæti (8,0)
Vörn og markvarsla Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk fengin á sig í leik - 4. sæti (26,3)
Hlutfallsmarkvarsla - 9. sæti (30,1%)
Varin víti - 11. sæti (11)
Stolnir boltar - 1. sæti (90)
Varin skot í vörn - 8. sæti (43)
Lögleg stopp í leik - 1. sæti (22,2)

Markvörður - Einar Baldvin Baldvinsson - 22 ára
Vinstra horn - Hergeir Grímsson - 22 ára
Vinstri skytta - Haukur Þrastarson - 18 ára
Miðja - Nökkvi Dan Elliðason - 22 ára
Hægri skytta - Árni Steinn Steinþórsson - 28 ára
Hægra horn - Alexander Már Egan - 22 ára
Lína - Atli Ævar Ingólfsson - 31 árs
Varnarmaður - Tryggvi Þórisson - 17 ára

Selfoss hefur framleitt handboltamenn á færibandi undanfarin ár. Tryggvi Þórisson (f. 2002) gæti orðið næstur til að stökkva fram á sjónarsviðið.
Tryggvi er hávaxinn línumaður sem gæti fengið hlutverk í vörn Selfoss eftir að Sverrir heltist úr lestinni.

Grímur Hergeirsson hefur verið aðstoðarþjálfari Selfoss undanfarin ár en er núna við stýrið á skútunni. Þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Þrátt fyrir að vera elsti þjálfari deildarinnar er Grímur sá reynsluminnsti þegar kemur að því að vera aðalþjálfari.
Grímur lék með Selfossi á árum áður og einnig í Noregi. Sonur hans, Hergeir, er fyrirliði Selfoss og bróður hans, Þóri, þekkja allir.
„Það verður virkilega fróðlegt að sjá það hvernig þetta Selfosslið þróast í vetur. Ég reikna samt með með svolítið erfiðri byrjun hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.

... varð Íslandsmeistari: 0 ár (2019)
... varð deildarmeistari: Aldrei
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2019)
... varð bikarmeistari: Aldrei
... komst í bikarúrslit: 26 ár (1993)
... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)
... komst í undanúrslit: 0 ár (2019)
... komst í lokaúrslit: 0 ár (2019)
... féll úr deildinni: 8 ár (2011)
... kom upp í deildina: 3 ár (2016)
Gengi Selfoss í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 2. sæti í deildinni
2017-18 2. sæti í deildinni
2016-17 5. sæti í deildinni
2015-16 B-deild (3. sæti)
2014-15 B-deild (4. sæti)
2013-14 B-deild (3. sæti)
2012-13 B-deild (5. sæti)
2011-12 B-deild (4. sæti)
Gengi Selfoss í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 Íslandsmeistari
2017-18 Undanúrslit
2016-17 Átta liða úrslit
2015-16 B-deild
2014-15 B-deild
2013-14 B-deild
2012-13 B-deild
2011-12 B-deild

Hvernig fylgir maður eftir fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins? Því fá Selfyssingar að svara í vetur. Hamra þeir járnið meðan það er heitt eða reynist bikarþynnkan sem erfið.
Elvar hefur verið besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár, frábær á báðum endum vallarins, og skarð hans er ekki hægt að fylla. Ekki hjálpar til að missa Sverri út. Selfyssingar eru því orðnir mjög þunnskipaðir í miðri vörninni. Varnarleikurinn er því talsvert stórt spurningarmerki fyrir tímabilið.
Selfoss býr svo vel að eiga einn efnilegasta leikmann heims, Hauk Þrastarson, í sínum röðum og hann fær enn meiri ábyrgð við brotthvarf Elvars og þarf að taka oftar af skarið. Nökkvi Dan Elliðason reyndist Selfossi gríðarlega mikilvægur í fyrra og hann verður í enn stærra hlutverki í vetur. Einar Sverrisson er væntanlegur eftir áramót og svo þurfa Selfyssingar að krossleggja fingur og vonast til að öxlin á Árna Steini Steinþórssyni haldi.
Selfyssingar verða góðir í vetur en verða þeir nógu góðir til að berjast um titla?