Malmö upp í annað sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. september 2019 17:44 Arnór Ingvi hefur verið að spila vel með Malmö vísir/getty Malmö hafði í dag betur gegn Norrköping, 1-0, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Með sigrinum komst liðið í 47 stig og er tveimur stigum á eftir toppliði AIk. Arnór Ingvi Traustason spilaði allan leikinn í liði Malmö sem og Guðmundur Þórarinsson hjá Norrköping, sem er í sjöunda sætinu með 40 stig. Sigurmark leiksins kom á 56. mínútu. Sören Rieks skoraði eftir stoðsendingu Markus Rosenberg. Malmö hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum en sjö umferðir eru eftir af tímabilinu í Svíþjóð. Sænski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti