„Þó þú getir samið lag á þrjá strengi er betra að vera með fimm sem eru vel stilltir“ Anton Ingi Leifsson skrifar 2. október 2019 13:00 FH-ingar fagna marki í sumar. vísir/bára
FH er komið aftur í Evrópukeppni eftir að hafa endað í 3. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. Pepsi Max-mörkin gerðu upp tímabilið hjá öllum liðunum í uppgjörsþætti sínum á laugardag. Tímabilið í fyrra var fyrsta tímabilið í háa herrans tíð sem FH-liðið tók ekki þátt í Evrópukeppni og þóttu það mikil vonbrigði en nú er liðið komið aftur í Evrópubolta. „Þetta endar ágætlega. Þeir komast í Evrópukeppni sem þeir hafa saknað en ég er ekkert viss um að þeir séu himinlifandi með sumarið og útkomuna. Mér finnst FH-liðið eiga helling inni,“ sagði Atli Viðar Björnsson. Máni Pétursson, annar sérfræðingur þáttarins, líkti FH-liðinu við gítar. „Mér fannst FH-ingarnir byrja vel og þeir virtust vita hvað þeir ætluðu að gera. Það var alltaf verið að hrókera og færa til. Það kom ekki vel út og þegar það tapaðist leikur var farið í alls konar tilfærslur.“ „Það er alveg hægt að orða þetta með FH-liðið að það eigi meira inni. Það er eins og þú sért með gítar en það er einn eða tveir strengir sem eru farnir. Þó þú getir samið lag á þrjá strengi er betra að vera með fimm sem eru vel stilltir.“ „FH-ingar horfa á þetta sem fínt tímabil því það var lífsspursmál að ná Evrópusætinu. Núna eru þeir búnir að ná því og þeir taka því þátt í glugganum í vetur. Það verður gaman að sjá hvað Ólafur Kristjánsson gerir í þeim glugga,“ sagði Máni. Alla umræðuna má sjá hér að neðan.Klippa: PMM: FH
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-mörkin Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Sjá meira