Í þessu samhengi hefur Eva Hauksdóttir lögfræðingur vakið athygli á því sem hún kallar háðsk gullkorn í stjórnarsáttmálanum:
„Skattrannsóknir verða efldar samhliða því að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgari vinnumarkaði. Áframhaldandi áhersla þarf að vera á alþjóðlegt samstarf gegn skattundanskotum og skattsvikum þannig að Ísland skipi sér í fremstu röð ríkja sem berjast gegn skattaskjólum.“
Andvaraleysið algert
En ef marka má FATF eru þetta orðin tóm, andvaraleysið er algert.Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans, sem hefur fjallað ítarlega um peningaþvætti í miklum greinaflokki á sínum miðli, fagnar því að þetta sé loksins komið á dagskrá, staða sem hefur legið fyrir í tæpt eitt og hálft ár; að Ísland hafi varla uppi nokkrar varnir gegn peningaþvætti.

„Það er stórmál – eitt það stærsta – að svona hafi staðan verið. Hér hafa meira að segja verið settar upp leiðir af Seðlabankanum til að þvo peninga og veita þeim heilbrigðisvottorð,“ segir Þórður Snær á Facebooksíðu sinni.
Ísland risavaxin peningaþvottastöð
Hann segir jafnframt fáa hafa sýnt málinu áhuga, enginn stjórnmálamaður tekið málið föstum tökum og enginn virtist ætla að gera neitt í þessu, ekki fyrr en FATF hótaði að setja Ísland á listann, sem myndi þá hafa t.d. áhrif á getu banka til að fjármagna sig alþjóðlega.Enginn hefur enn kallað eftir því að það verði rannsakað í þaula hvort að Ísland hafi verið risavaxin peningaþvottastöð.Björn Leví Gunnarsson þingmaður staðfestir þetta áhuga- og andvaraleysi. „Við fáum nákvæmlega núll áhuga þegar við spyrjum um þessi mál á þingi. Það mætir kannski einhver á stuttan fund þar sem svör við spurningum fara alla hringi sem hægt er að hugsa sér og svo klárast tíminn og ekkert ... gerist.“