
Lögmaður Trump „vasahringdi“ í fréttamann

Rich Shapiro, fréttamaður NBC-sjónvarpsstöðvarinnar, segir að hann hafi fengið tvenn talhólfsskilaboð frá Giuliani á einum mánuði. Þau hafi að líkindum verið svonefndar „vasahringingar“ (e. Butt dial) þar sem viðkomandi hringir óvart í númer þegar sími opnast í vasa. Shapiro hafði rætt við Giuliani í síma daginn áður en hann fékk fyrri hringinguna.
Í skilaboðunum heyrðist Giuliani fjargviðrast yfir Biden, fyrrverandi varaforseta og mögulegum forsetaframbjóðanda demókrata. Giuliani og Trump eru nú til rannsóknar vegna þrýstingsherferðar þeirra til að fá úkraínsk stjórnvöld til að rannsaka Biden.
„Biden er búinn að vera að græða á opinberu embætti sínu síðan hann var öldungadeildarþingmaður,“ heyrist Giuliani segja við óþekktan mann. Nefndi hann einnig stoðlausa ásökun þeirra Trump um að Biden hafi fengið úkraínskan saksóknara rekinn til að vernda son sinn Hunter sem sat í stjórn úkraínsks olíufyrirtækis.
„Hann gerði það sama í Kína og hann reyndi að gera það í Kasakstan og Rússlandi,“ heyrðist Giuliani segja, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.
Í seinni talhólfsskilaboðunum til Shapiro voru það hins vegar peningar sem voru Giuliani efstir í huga.
„Við þurfum nokkur hundruð þúsund dollara,“ heyrðist Giuliani segja þar. Barein kom einnig til tals í skilaboðum.
Nokkrir samverkamenn Giuliani í þrýstingsherferðinni í Úkraínu voru handteknir á dögunum, meðal annars grunaðir um peningaþvætti. Fréttir herma einnig að Giuliani sjálfur gæti verið til sakamálarannsóknar.
Tengdar fréttir

Sendiherra segist hafa verið ósáttur við ákvörðun Trump en fylgt henni samt
Einn þeirra sem eru í miðpunkti Úkraínumáls Trump Bandaríkjaforseta segist ekki hafa gert sér grein fyrir að meira hafi hangið á spýtunni í samskiptum við úkraínsk stjórnvöld.

Vissu að Trump hefði stöðvað aðstoð á meðan þrýstingur stóð yfir
Upplýsingar sem New York Times hefur undir höndum grafa undan málsvörn Trump og bandamanna hans varðandi samskipti hans við Úkraínu á þessu ári.

Trump skipaði Perry að vinna með Giuliani í Úkraínu
Í viðtali skýrir orkumálaráðherra Bandaríkjanna frekar hversu mikil áhrif persónulegur lögmaður Trump forseta hafði á stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Úkraínu.

Sendiherra ekki viss um hvort Trump sagði satt um Úkraínu
Utanríkisráðuneytið bannaði sendiherra Bandaríkjanna við ESB að bera vitni en hann er engu að síður ætla að koma fyrir þingnefnd í vikunni.

Uppþot þegar Repúblikanar reyndu að brjóta sér leið inn á lokaðan fund
Það ætlaði allt um koll að keyra í þinghúsi Bandaríkjanna í dag eftir að fresta þurfti lokuðum vitnisburði í tengslum við Úkraínu-málið þegar hópur þingmanna Repúblikana reyndi að brjóta sér leið inn í fundarherbergið.

Segir Trump hafa ýtt á eftir því að henni yrði vikið úr starfi sendiherra í Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að víkja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr embætti sínu. Frá þessu greindi fyrrverandi sendiherrann Marie Yovanovitch í yfirheyrslum vegna rannsóknar Bandaríkjaþings á meintum brotum Trump í starfi er viðkoma Úkraínu-skandalnum sem tröllríður pólítískri umræðu vestanhafs.

Þjóðaröryggisráðgjafi Trump vildi ekki taka þátt í „dópviðskiptum“
Fyrrverandi yfirmaður málefna Rússlands og Evrópu hjá þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna bar vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar möguleg embættisbrot Trump forseta í gær.