

Arðbærar loftslagsaðgerðir
Róttækar breytingar í lagaumhverfi bílaflotans. Rafmagnsbílum fjölgar ört eða um 15-20% á næstu árum en það nægir engan veginn til að uppfylla skilyrði Parísarsamkomulagsins frá 2016. Tilkoma Borgarlínu er vissulega mótvægisbyggjandi en takmarkaður þáttur. Ökutækjum á vegum þarf einfaldlega að fækka svo um munar.
Þörf er á nýjum og haldbærum breytingum sem samtengja bílaeign við búsetu. Nota mætti hlutfall af fermetrastærð fasteigna sem mælistiku fyrir fjölda ökutækja sem hægt væri að skrá á viðeigandi eign.
Straumsvík getur orðið hafnarsvæði fyrir skemmtiferðaskip á höfuðborgarsvæðinu. Þessum fljótandi borgum ætti að vera óheimilt að liggja við landfestar og framleiða rafmagn með brennslu jarðeldsneytis. Ef markmiðið er að þjóna þessum skipum er þörf fyrir nýtt hafnarstæði og er Straumsvík ákjósanlegur kostur. Þar eru innviðir með háspennu- og tengivirki til að mæta breyttum þörfum sem aðlaga þarf að umgjörð hafnarinnar og orkuþörfum skipanna, en væri ekki óyfirstíganlegt verkefni. Ekkert hafnarstæði á höfuðborgarsvæðinu er betur til fallið með minnsta mögulega tilkostnaði.
Svanasöngur álversins í Straumsvík er óumdeilanlegur og hefur reksturinn seinustu árin ekki gengið vel. Tækjabúnaður er gamall og með stuttu millibili hafa myndast svokallaðir ljósbogar í kerskálum verksmiðjunnar. Öll skynsamleg rök eru til staðar fyrir lokun álversins. Spara mætti útsölu þjóðarbúsins á orku til stóriðju og minnka gróðurhúsalofttegundir í sama vetfangi.
Bræðsla á málmgrjóti og útblástur olíudrifinna véla eru stærsti orsakavaldur gróðurhúsalofttegunda hérlendis. Málmbræðsla og önnur stóriðja notar á bilinu 85-90% af endurnýjanlegum orkugjöfum landsins og beinlínis hindrar nýsköpunaratvinnuvegi í að ná rekstrarlegri fótfestu. Þörf er á lagabreytingum svo við sem þjóðfélag getum haft aðra vitsmunalegri og arðbærari atvinnuvegi en málmbræðslu, sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Viðbótarrök fyrir lagabreytingum ofangreindra liða er svifryksmengun vegna umferðarþunga á vegum og svartolíubrennslu skemmtiferðaskipa.
Brýn þörf er á lagabreytingum er varða sölu Landsvirkjunar á raforku þjóðarbúsins og tilkoma sæstrengs mun auka a´bata og minnka a´hættu orkuframleiðenda hérlendis. Sala a´ raforku í gegnum sæstreng mun koma fram sem áhættudreifing fyrir Landsvirkjun þar sem selt er til nýrra aðila og undir öðrum skilmálum. Frá árinu 2016 hafa verið birtar skýrslur (Landsvirkjun, Orkustofnun, atvinnuvegar- og nýsköpunarráðuneytið, Gamma), sem sýna árlega á fimmta tug milljarða króna í aukinni hagsæld þjóðarbúsins, sem tekjur til ríkisins vegna sölu á raforku gegnum sæstreng til Evrópu. Það munar um minna en 50 milljarða.
Höfundur er aðjúnkt við Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Skoðun

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar