Þetta er það sem við vitum um árásina:
- Tilkynnt var um hnífaárás á London Bridge um klukkan 14
- Breska lögreglan brást við atvikinu sem um hryðjuverk væri að ræða
- Vopnaðir lögreglumenn skutu árásarmanninn til bana á London Bridge
- Nokkrir særðust í hnífaárásinni
- Árásarmaðurinn var klæddur í gervisprengjuvesti
- London Bridge verður áfram lokuð og lögreglumenn verða áberandi í grennd til að tryggja öryggi almennings
- Lögreglan biðlar til almennings um myndbönd og myndir teknar af vitnum
- Tæknideild lögreglu er við störf á vettvangi
Lögreglan í London segir atburðarásina enn óljósa en til segjast bregðast við atburðinum eins og um hryðjuverk sé að ræða.
Mikil skelfing greip um sig á meðal viðstaddra en lögregla hefur nú lokað umferð í báðar áttir. Vitni segjast hafa heyrt tvo skothvelli.
Fólk flúði af brúnni
Mikill fjöldi lörgeglumanna, margir hverjir gráir fyrir járnum, mætti á svæðið og beindi verkamönnum og ferðamönnum af svæðinu. Svæðið í kringum London Bridge er pakkað af háum skrifstofubyggingum, bönkum, veitingastöðum og krám. Starfsmönnum í byggingum hefur verið sagt að halda kyrru fyrir innandyra.London brúin tengir viðskiptahverfi borgarinnar við suðurbakka árinnar Thames.
London Bridge Attack pic.twitter.com/1R6v0j1o51
— Wolfgang Kitzler (@wolfgangert) November 29, 2019
Vitni lýstu því að hafa orðið vör við það sem virtust vera slagsmál á brúnni og svo heyrðust skothvellir. Sky News greindi frá því að sá sem var skotinn hafi verið meintur árásarmaður.
Heyrði skothvelli
Einar Orn, útvarpsmaður í London, fylgdist með því sem fram fór á svölum skrifstofubyggingar þar sem hann vinnur. Einar sat utandyra en á leiðinni inn eftir hádegishlé þegar hann sá allt í einu lögreglubíla mæta á svæðið. Svo heyrði hann hvelli.„Við héldum að þetta væru byssuskot eða flugeldar, vorum ekki viss. Nokkrum mínútum síðar þá heyrðum við miklu fleiri byssuskot, fólk byrjaði að hlaupa af brúnni að götunum. Strætóarnir stoppuðu, fjöldi lögreglubíla og sjúkrabíla komu á svæðið svo það hefur margt verið að gerast,“ sagði Einar Orn í viðtali við BBC.
Hann segir mjög marga hafa verið á brúnni, líklega í kringum 300 hlaupandi á brúnni og nokkrir á götunni, en svo hafi bílar og strætóar blokkað útsýni hans.
Einar Orn birti þessi myndbönd í dag en fréttastofu er ekki kunnugt um hvort hann sé af íslensku bergi brotinn.
— Einar Orn (@einarorn_) November 29, 2019
Íbúar og vegfarendur í London eru hvattir til að vera á varðbergi og tilkynna lögreglu taki það eftir einhverju grunsamlegu.
Að neðan má sjá myndbönd frá vettvangi í London.
"There was a rush of people running into the cafe...people rushed in, immediately the manager ran and shut the door and locked it, and everybody basically dove under the tables," says a witness who was at a cafe near London Bridge during the incident https://t.co/uyjGx0cpS5 pic.twitter.com/UUhBCyX2ir
— CNN International (@cnni) November 29, 2019
Vinnustöðvun vefblaðamanna stendur yfir á Vísi. Fréttastofa óskaði eftir undanþágu til að geta flutt lesendum sínum fregnir af atburðunum í London sem gætu varðað öryggi Íslendinga á svæðinu. Undanþágunefnd Blaðamannafélags Íslands samþykkti undanþágubeiðnina.