Ingi Þór: Fáránlegt hvað við vorum daufir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. nóvember 2019 21:32 Ingi var ekki sáttur með hugarfar sinna manna í kvöld. vísir/bára
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, var ómyrkur í máli eftir tap Íslandsmeistaranna fyrir Njarðvík í kvöld, 75-78. Þetta var annað tap KR-inga í röð á heimavelli. „Það vantaði að mæta almennilega til leiks. Það var fáránlegt hvað við vorum daufir,“ sagði Ingi í samtali við Vísi eftir leik. KR lenti mest 15 stigum undir í 3. leikhluta en kom svo með sterkt áhlaup í upphafi þess fjórða. En svo fór vindurinn aftur úr KR-blöðrunni. „Við náðum frábærum kafla í 4. leikhluta en ég er ósáttur við að við höfum ekki unnið betur úr þeirri stöðu,“ sagði Ingi. „Við töpuðum boltanum níu sinnum í fyrri hálfleik, þar af sjö sinnum í 1. leikhluta. Við töluðum um að gera betur í þeim efnum en gerðum það ekki og töpuðum tólf boltum í seinni hálfleik. Þessi leikur vannst á sóknarfráköstum og töpuðum boltum. Það er klárt mál.“ Njarðvík var með yfirburði inni í teig í fyrri hálfleik og tók m.a. tólf sóknarfráköst. „Bakverðirnir þeirra voru með fullt af sóknarfráköstum. Allt liðið frákastaði mjög illa,“ sagði Ingi. Honum fannst vanta upp á baráttuna hjá KR-ingum í kvöld. „Algjörlega. En svo áttum við feyki góðan kafla. Við breyttum aðeins hvernig við spiluðum,“ sagði Ingi. „Sóknarleikurinn okkar var svolítið einhæfur og við töpuðum boltanum vegna þess. Þeir gerðu mjög vel og því miður leystum við ekki það sem við ætluðum að gera.“
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: KR - Njarðvík 75-78 | Aftur töpuðu meistararnir á heimavelli Njarðvík vann sinn þriðja leik í röð í Domino's deild karla þegar liðið lagði Íslandsmeistara KR að velli, 75-78. 21. nóvember 2019 21:30 Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina Sport Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Sjá meira
Umfjöllun: KR - Njarðvík 75-78 | Aftur töpuðu meistararnir á heimavelli Njarðvík vann sinn þriðja leik í röð í Domino's deild karla þegar liðið lagði Íslandsmeistara KR að velli, 75-78. 21. nóvember 2019 21:30