Sýknað í nauðgunarmáli fyrrverandi grunnskólapars Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. desember 2019 12:14 Samskipti piltsins og stúlkunnar frá því árið 2013 þegar þau voru par á efri stigum grunnskóla voru meðal sönnunargagna í málinu. GETTY/CHESNOT
21 árs karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Var honum gefið að sök að hafa í ágúst 2015, þegar hann var sautján ára, beitt fyrrverandi kærustu sína í grunnskóla ofbeldi og ólögmætri nauðung. Stúlkan sakaði piltinn um að hafa, eftir að hann hafði kysst hana á rúmi í svefnherbergi hennar, haldið henni niðri og haft við hana samfarir í kjölfar þess að hún hefði gert honum ljóst að hún vildi það ekki með orðum og athöfnum. Lét hann ekki af háttseminni þrátt fyrir að hún hefði ítrekað sagt honum að hætta að því er sagði í ákæru. Engin vitni voru að meintri heimsókn piltsins til stúlkunnar umræddan dag. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 3. desember. Fyrrverandi vinir báru vitni Pilturinn neitaði alfarið sök í málinu og sagðist raunar alls ekki hafa farið heim til stúlkunnar umrætt sinn. Hið rétta væri að þau hefðu einu sinni haft samræði, á heimili hans fyrr um sumarið. Stúlkan neitaði því ekki en sagði kæruna vera vegna atviks heima hjá henni síðar um sumarið. Ákæruvaldið byggði ákæru sína á því að framburður ákærða væri ótrúverðugur, meðal annars að því leyti að hann neitaði að hafa farið heim til stúlkunnar umrætt sinn. Taldi ákæruvaldið að framburður fyrrverandi vina piltsins renndu stoðum undir frásögn stúlkunnar að pilturinn hefði farið heim til hennar umrætt sinn. Fyrir dómi minntist hvorugt vitnið þess aftur á móti að í samtali þeirra við ákærða hefði komið fram hvort ákærði hefði farið heim til brotaþola umrætt sinn. Innan við fjórir mánuðir liðu frá skýrslutöku vinanna fyrrverandi hjá lögreglu og þar til skýrsla var tekin af þeim við aðalmeðferð í málinu. Þá settu vinirnir fyrrverandi mikla fyrirvara við framburð sinn hjá lögreglu vegna þess að þeir kváðust ekki muna atvik nægilega vel. Þá stóðust tímasetningar í framburði annars vinarins fyrrverandi hjá lögreglu bornar saman við gögn málsins. Hann lýsti samtali við ákærða sem hefði líklega átt sér stað í ágúst eða september 2015 en þá hefði hann heyrt orðróm um kynferðisbrot í nokkurn tíma. Við allt þetta bættist að vinirnir fyrrverandi fóru ekki dult með þungan hug sinn í garð ákærða. Virtist það stafa af meintu kynferðisofbeldi ákærða gegn annarri stúlku. Urðu vinslit af þessari ástæðu á milli þeirra og ákærða um mitt ár 2017. Eltur í bíl og hvattur til sjálfsmorðs Pilturinn sem sætti ákæru sagði annan vininn fyrrverandi hafa haft í hótunum við sig í verslun eftir vinslitin. Skoraðist vinurinn fyrrverandi undan því að svara spurningum um það atriði fyrir dómi eftir að dómari benti honum á heimild til þess. Þá lýsti pilturinn því að í eitt sinn eftir vinslitin hefði hann verið eltur af piltum í bifreið þegar hann var á leið í bíó. Þeirra á meðal hefði verið annar vinanna fyrrverandi. Auk þess hefði verið hringt úr síma annars vinarins í piltinn og hann hvattur til að fremja sjálfsvíg. Vinurinn fyrrverandi kannaðist við að hafa veitt piltinum eftirför þótt hann hefði ekki haft frumkvæðið að þessu. Að þessu virtu mat héraðsdómarinn að óljós framburður þessara lykilvitna saksóknara um samtal við piltinn yrði ekki lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Ógnandi á balli Saksóknari vísaði einnig til atviks á skólaballi í október 2016. Með framburði stúlkunnar og vinkvenna hennar taldi dómurinn sannað að pilturinn hefði sýnt af sér ógnandi hegðun þegar hann lamdi í rúðu nálægt stúlkunum þegar hann yfirgaf ballið. Pilturinn kannaðist ekki við atvikið fyrir dómi en sagðist hafa verið mög ölvaður á ballinu. Dómurinn sagðist ekki geta litið fram hjá því að ljóst væri að kærasti stúlkunnar hefði kýlt piltinn fyrr um kvöldið. Þá sagði önnur vinkonan fyrir dómi að stúlkan hefði sagt sér að pilturinn hefði sólarhring fyrr lýst óánægju sinni með að hún væri að „ljúga“ upp á hann. Fyrirliggjandi Facebook-samskipti piltsins og stúlkunnar frá því í október 2016 í kjölfar skólaballsins gefi einnig til kynna að pilturinn hafi verið ósáttur við orðróm sem hann hafi heyrt um frásögn hennar af meintu kynferðisofbeldi hans í hennar garð. Dómurinn telur að háttsemi piltsins á skólaballinu renni því ekki stoðum undir annað en að pilturinn, sem þá var ungur að árum, hafi verið ósáttur við að sitja undir orðrómi um ásökun stúlkunnar í hans garð. Í því felist þó ekki sönnun á því að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru eða að framburður hans í málinu verði af þessum sökum talinn ótrúverðugur. Saksóknari byggði jafnframt mál sitt á því að samskipti piltsins og stúlkunnar á Facebook árið 2013, tveimur árum fyrir hið meinta brot, styddu málatilbúnað ákæruvaldsins. Dómurinn mat að varðandi þessi samskipti yrði að líta til þess hve löngu fyrir meinta brotið samskiptin áttu sér stað. Þá hafi pilturinn verið fimmtán ára. Hann hafi fyrir dómi gefið fyrrnefndar skýringar og ekki yrðu dregnar frekari ályktanir af ummælunum. Einlæg frásögn ekki nóg gegn staðfastri neitun Dómurinn benti á að langt væri liðið frá meintu broti sumarið 2015. Engir sjónarvottar hefðu verið að meintri heimsókn piltsins á heimili stúlkunnar. Engin gögn lægju frammi í málinu sem renndu stoðum undir þá staðhæfingu hennar að pilturinn hefði sent henni skilaboð umrætt kvöld. Var kæra ekki lögð fram fyrr en rúmlega 28 mánuðum eftir hið meinta brot. Þá kæmi tímasetning brotsins ekki fyllilega heim og saman við staðreyndir málsins. Þannig lýsti stúlkan því hjá lögreglu og fyrir ómi að hún hefði farið út að skemmta sér „föstudagskvöldið“ 25. ágúst 2015. Í reynd var sú dagsetning þriðjudagur. Dómurinn minnir á að á ákæruvaldinu hvíli sönnunarbyrði um sekt piltsins og atvik sem telja megi honum í óhag. Hann hafi staðfastlega neitað sakargiftum. Framburður hans fyrir dómi og hjá lögreglu hafi verið stöðugur og ekkert til þess fallið að rýra trúverðugleika hans. Stúlkan hafi virst einlæg í framburði sínum en það sé ekki nóg til að vera lögfull sönnun um brot piltsins gegn neitun hans. Gögn um áfallastreituröskun stúlkunnar og framburður vitna um líðan hennar og frásögn af meintu atviki breyti því heldur ekki. Að þessu framangreindu var pilturinn sýknaður af ákæru um nauðgun. Allur sakarkostnaður, á þriðja milljón króna, greiðist úr ríkissjóði.Fréttin hefur verið uppfærð.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sjá meira