Innlent

Maraþon sem átti að fara fram í Rotterdam fór fram í heimahúsi

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Maraþon átti að fara fram í Rotterdam um helgina. 
Maraþon átti að fara fram í Rotterdam um helgina.  SKJÁSKOT ÚR FRÉTT

Fjögurra manna hópur hljóp maraþon á hlaupabretti í heimahúsi í dag. Upprunalega átti hlaupið að fara fram í Rotterdam en því var frestað vegna Kórónuveirunnar. Maraþon heima segja þeir góða sparnaðarleið og umhverfisvænni kost.

„Planið var að vera í Rotterdam þessa helgi og hlaupa maraþon á morgun en það hefur öllu verið frestað,“ sagði Birgir Örn Birgisson, hlaupari.

Ákvað hópurinn þá að þeir skyldu hlaupa maraþonið á hlaupabretti í World Class.

„En svo þegar samkomubannið var hert þá þurftum við að finna eitthvað annað. Við erum svo heppnir að Ívar á bretti hérna heima þannig við fengum þá klikkuðu hugmynd að hlaupa svona raðmaraþon hér,“ sagði Birgir.

Þeir stilltu hlaupabrettinu upp á efstu hæð hússins. Klukku fyrir framan brettið og stilltu upp fána til að kóróna stemninguna.

Um er að ræða 42,2 kílómetra vegalengd og skipta þeir hlaupinu á milli sín þannig að hver hlaupari er að í rúma þrjá klukkutíma. Sá fyrsti hóf leik klukkan sex í morgun og gera þeir ráð fyrir að hlaupið taki í heildina fjórtán tíma.

Maraþoni fylgir yfirleitt stuðningur á hliðarlínunni og segja þeir að slíkan stuðning hafi ekki vantað í dag.

„Já það eru fullt af hlaupafélögum sem hafa komið við og hvatt okkur, fjölskyldumeðlimir og aðrir þannig já við höfum fundið fyrir miklum stuðningi,“ sagði Birgir

Maraþonið í heimahúsi segja þeir góða sparnaðarleið og umhverfisvænni kost.

Þetta getur ekki verið eins og að hlaupa á götum Rotterdam?

„Þetta er auðvitað betra fyrir loftslagsmálin að hlaupa þetta bara hér,“ sagði Stefán Birgisson, hlaupari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×