Innlent

Aftur greindist enginn með kórónu­veiruna

Atli Ísleifsson skrifar
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi

Enginn greindist með kórónuveiruna hér á landi síðasta sólarhringinn samkvæmt nýuppfærðum tölum á Covid.is.

Greint var frá því í gær að engin nú smit hafi greinst þann 13. maí, og eru smitin á Íslandi því enn 1.802 talsins.

Alls eru nú tíu manns í einangrun vegna kórónuveirusmits og hefur þeim fækkað um tvo. Sem fyrr hafa alls tíu látist vegna veirunnar.

729 eru nú í sóttkví og hefur þeim fjölgað um 48 milli daga. Alls hafa 19.802 lokið sóttkví.

Tekin voru 593 sýni í gær – 129 á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og 464 hjá Íslenskri erfðagreiningu. Í heildina hafa því verið tekin 56.219 sýni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×