Valdi Scholes og Ronaldo bestu samherjana en Zanetti erfiðasta mótherjann Anton Ingi Leifsson skrifar 24. maí 2020 14:00 Ryan Giggs. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ryan Giggs segir að þeir Cristiano Ronaldo og Paul Scholes séu þeir bestu sem hann spilaði með á ferlinum en Giggs vann hvern titilinn á fætur öðrum og spilaði með mörgum frábærum knattspyrnumönnum í gegnum tíðina. Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Eric Cantona eru á meðal þeirra leikmanna sem núverandi stjóri landsliðs Wales spilaði með en fyrsti sem hann nefndi þegar hann talaði um besta samherjann var Ronaldo. „Besti leikmaður sem ég hef spilað með var Cristiano Ronaldo. Augljóslega var hann ekki lengi hjá United en hann var frábær þar og hélt svo áfram að gera enn betur á öðrum stöðum,“ sagði Giggs í samtali við MUTV Group Chat. Ronaldo skoraði 118 mörk í 292 leikjum fyrir þá rauðklæddu. Ryan Giggs reveals his two best Man United team-mates were Cristiano Ronaldo and Paul Scholes https://t.co/Rya1tRcpJO— MailOnline Sport (@MailSport) May 24, 2020 „Scholes var einnig sá besti. Þú komst ekki nálægt honum á æfingum. Heilinn hans var á undan öllum öðrum, mikil gæði í sendingum og svo var hann andstyggilegur. Hann var frábær á æfingum.“ Eftir að hafa valið þá tvo leikmenn sem voru bestu samherjarnir var komið að þeim mótherja sem var erfiðast að spila gegn. Það var Javier Zanetti. „Hann gat hlaupið allan daginn, var einnig miðjumaður svo hann var öruggur á boltanum. Hann gat varist og hann var erfiður. Hann braut á mér nefið í átta liða úrslitunum í Meistaradeildinni líka svo hann hefur allt sem varnarmaður þarf að hafa. Hann var sá besti sem ég spilaði gegn.“
Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Tekur hanskana af hillunni og hjálpar Börsungum í neyð Í beinni: KA - HK | Hve kröftug er bikarþynnkan? McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Sjá meira