Innlent

„Þetta var í senn skemmti­legt og sorg­legt”

Atli Ísleifsson skrifar
Capture

„Þetta var í senn skemmtilegt og sorglegt,” segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri um sjónvarpskappræður Guðna Th. Jóhannessonar forseta og frambjóðandans Guðmundar Franklíns Jónssonar á Stöð 2 fyrr í kvöld.

Í seinni hluta þáttarins færðist mikill hiti í leikinn þar sem Guðmundur Franklín gagnrýndi meðal annars framkomu forsetahjónanna í sjónvarpsauglýsingu Ferðamálastofu þar sem Íslendingar eru hvattir til að ferðast innanlands. Þar að auki sagðist Guðmundur Franklín vilja forseta sem „ekki þyrfti að skammast sín fyrir" á erlendri grundu án þess að útskýra það neitt nánar. 

„Ert þú stolt­ur af fram­göngu þinni hér í kvöld?“ spurði Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, mót­fram­bjóðanda sinn Guðmund Frank­lín Jóns­son. Guðmundur svaraði því játandi.

Kom ekki málefnanlega frá þessu

Grétar Þór sagði það ekki til sóma hvernig frambjóðandi til forsetaembættisins skyldi vinkla ákveðna hluti í þættinum. „Guðmundur Franklín kom ekki mjög málefnanlega frá þessu. Það er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu.”

Grétar segir að Guðmundur Franklín hefði mátt hemja málflutning sinn betur en hann gerði. „Ég þekki Guðna. Ég hef aldrei séð Guðna reiðan áður. Hann reiddist á einum tímapunkti þegar Guðmundur fór að draga eitthvað upp úr forsetakosningum 2016.”

Grétar Þór segir að oft megi hafa gaman af Guðmundi Franklín. „Hann getur verið skemmtilegur á köflum og geðþekkur en sýndi á sér hliðar sem eru svolítið hæpnar. Hann fór oft yfir strikið enda voru þáttastjórnendur mjög mikið í því að leiðrétta hann og árétta að hann væri að grípa fram í.”

Breytir ekki fylgi Guðmundar Franklíns

Greint var frá niðurstöðum nýrrar könnunar í þættinum í kvöld sem benda til að Guðni Th. Jóhannesson myndi fara með öruggan sigur ef kosið yrði um forseta Íslands. Guðni fengi 92,4 prósent atkvæða samkvæmt könnun Maskínu og Stöðvar 2 og Guðmundur Franklín 7,6 prósent. Guðmundur Franklín Jónsson sækir fylgi sitt helst til eldra fólks og kjósenda flokka til hægri, sér í lagi Miðflokksins.

Grétar Þór segist halda að fylgi Guðmundar Franklíns verði á svipuðum stað eftir þessa frammistöðu og verið hefur. Þeir sem hafi lýst yfir stuðningi við Guðmund í könnunum muni gera það áfram. 

„Þeir muni ekkert bakka með það. Maður veit ekki á hverju sá stuðningur byggir en virðist tengjast viðhorfum til þriðja orkupakkans þó að ég skilji ekki alveg þá tengingu. En þessar tvær úrtakskannanir sýna að þeir sem styðja Guðmund tengjast helst flokki sem stóð fyrir málþófi í umræðu um þriðja orkupakkann. Fylgið verði einhvers staðar á bilinu fimm til tíu prósent,” segir Grétar Þór.


Tengdar fréttir

„Ertu stoltur af framgöngu þinni hér í kvöld?“

„Ert þú stoltur af því að vera Íslendingur? Nú kallar þú þjóð þína meðal annars þrasgjarna, fávísan lýð og rasista. Fyrir það að berjast í þorskastríðunum. Eins veltirðu fyrir þér hvort hún eigi almennt að vera sjálfstæð í útvarpsviðtali í Speglinum í kring um IceSave,“ spurði Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi, Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands að í umræðuþætti á Stöð 2 í kvöld.

Deildu um þriðja orkupakkann og valdsvið forseta

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Franklín Jónsson mótframbjóðandi hans tókust á í kappræðum í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Farið var um víðan völl og kom meðal annars upp sú spurning hvenær forseti skyldi beita synjunarvaldi sínu, eða 26. grein stjórnarskrárinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×