Innlent

Starfsmenn horfa áhyggjufullir til 1. júlí

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Álver Rio Tinto í Straumsvík.
Álver Rio Tinto í Straumsvík. Vísir/vilhelm

Starfsmenn Rio Tinto í álverinu í Straumsvík eru uggandi yfir óvissunni sem einkennir framtíð rekstursins. Gefið var út í febrúar að endurskoðun Rio Tinto á rekstri álversins yrði lokið á fyrri helmingi árs 2020, þ.e. fyrir næstu mánaðamót. Þá rennur kjarasamningur starfsmanna Rio Tinto á Íslandi að óbreyttu einnig út um mánaðamótin.

„Fólk er áhyggjufullt af því að verið er að endurskoða rekstrarforsendur verksmiðjunnar, það var gefið út í Kauphöllinni í London á sínum tíma. Því á að ljúka á fyrri helmingi ársins, sem er þá þessi dagsetning 1. júlí. Þá kemur í ljós hvaða framtíðarhorfur þeir sjá fyrir verksmiðjuna, hvort þeir ætli að breyta rekstrinum á einhvern hátt eða jafnvel leggja hann niður,“ segir Reinhold Richter trúnaðarmaður starfsmanna Ísal í samtali við Vísi.

„Ég veit ekkert frekar en aðrir hvað er að gerast í þessari könnun eða hvernig hún stendur.“

Einnig óvissa um kjörin

Sá fyrirvari er á kjarasamningi starfsmanna Rio Tinto að hann sé bundinn því skilyrði að nýr raforkusamningur takist við Landsvirkjun. Í samningnum er þannig kveðið á um að nýr kjarasamningur falli úr gildi 30. júní ef viðræður Rio Tinto og Landsvirkjunar skili ekki árangri.

„Það er eitthvað sem við ráðum við ekki við og vitum ekki hvernig staðan er,“ segir Reinhold.

„Þá byrja aftur kjaradeilur ef það kemur ekki inn. Og það er sama dagsetning. Það er 1. júlí sem þau þurfa að vera búin að láta okkur vita um það, hvernig það er. Þannig að það er þetta tvennt sem er að ergja starfsmenn. Óvissa um framtíðina og óvissa um kjörin sín.“

Tilkynnt var í febrúar síðastliðnum að Rio Tinto hyggðist hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík, Ísal, „til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar og leita leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu þess.“

Rekstur álversins hefur gengið brösulega undanfarin ár en forsvarsmenn segja álverið ekki samkeppnishæft vegna hás raforkukostnaðar. Gefið var út í febrúar að allar leiðir yrðu skoðaðar í umræddri endurskoðun; þar á meðal frekari framleiðsluminnkun og mögulega lokun álversins. Morgunblaðið hafði eftir heimildum sínum í apríl að Rio Tinto skoðaði þann möguleika að loka álverinu í tvö ár til að takmarka taprekstur.

Í tilkynningu segir að endurskoðunarferlinu eigi að vera lokið á fyrri helmingi árs 2020. Þá hafði framleiðsla Ísal þegar verið minnkuð í 85 prósent af afkastagetu. 500 manns starfa í Straumsvík. Bjarni Már Gylfason upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi gat ekki tjáð sig um stöðu mála að svo stöddu þegar Vísir leitaði eftir því í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×