Búið er að opna Hvalfjarðargöng fyrir umferð á nýjan leik. Þeim var lokað fyrr í dag vegna umferðarslyss þar sem tvö mótorhjól og húsbíll lentu saman á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Þrjú eru alvarlega slösuð, en ekki er meira vitað um líðan þeirra að svo stöddu.
Greint er frá opnun ganganna á Twitter-síðu Vegagerðarinnar.
Hvalfjarðargöng: Göngin eru opin fyrir umferð #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) June 28, 2020
Þá hefur vegurinn á Kjalarnesi einnig verið opnaður fyrir umferð.
Kjalarnes: Vegur hefur verið opnaður á ný fyrir umferð. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) June 28, 2020
Talsverð umferðarteppa myndaðist eftir að vegum var lokað við slysið. Vesturlandsvegi við Þingvallaveg og Hvalfjarðargöngum var lokað en lögreglan opnaði fyrir hjáleið um Hvalfjarðarveg, Kjósarskarð og svo Þingvallaleið.
