Erlent

Mögulega hafi mátt gera hlutina öðruvísi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Boris Johnson hefur verið forsætisráðherra Bretlands í eitt ár upp á dag.
Boris Johnson hefur verið forsætisráðherra Bretlands í eitt ár upp á dag. WILL OLIVER/EPA

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur viðurkennt að ríkisstjórn hans skildi ekki kórónuveiruna „á fyrstu vikum og mánuðum“ faraldursins í Bretlandi. Þá sagði hann að suma hluti hefði mögulega mátt gera öðruvísi.

Þetta kom fram í viðtali breska ríkisútvarpsins við Johnson. Þar sagði hann einnig að draga mætti lærdóm af faraldrinum í Bretlandi. Verkamannaflokkurinn hefur sakað ríkisstjórn Johsons, sem er leiðtogi Íhaldsflokksins, um að bregðast rangt við útbreiðslu veirunnar í Bretlandi.

Yfir 45.000 manns hafa látið lífið af völdum veirunnar í Bretlandi og tæplega 300.000 greinst með hana.

„Við skildum ekki veirunni á þann hátt sem við hefðum viljað á fyrstu vikunum og mánuðunum,“ sagði Johnson í viðtalinu, sem tekið var í tilefni þess að ár er liðið síðan hann tók við af Theresu May sem forsætisráðherra.

„Það mikilvægasta sem við áttuðum okkur ekki á í upphafi var hvernig veiran gat smitast milli manna í gegn um einkennalausa smitbera.“

Tíminn til að líta til baka komi síðar

Þá sagðist forsætisráðherrann telja að kryfja þurfi viðbrögð stjórnvalda í upphafi faraldursins, en tækifæri til þess muni koma síðar.

„Kannski hefðum við getað gert suma hluti öðruvísi og sá tími mun koma þar sem ráðrúm veitist til að átta okkur á hvað við hefðum getað gert, eða gert öðruvísi.“

Þá sagði hann þjóðina syrgja þau sem hafa orðið veirunni að bráð.

„Við syrgjum hvert og eitt einasta þeirra sem týndi lífi sínu og hugur okkar er hjá fjölskyldum þeirra. Ég tek fulla ábyrgð á því sem ríkisstjórnin gerði.“

Johnson var í apríl síðastliðinn lagður inn á gjörgæslu með veiruna. Hann sagði síðar að brugðið hefði getað til beggja vona hvað hann sjálfan varðaði, og þakkaði heilbrigðisstarfsfólkinu sem sá um hann og hrósaði breska heilbrigðiskerfinu í hástert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×