Þegar storminn hefur lægt Jón Björn Hákonarson skrifar 10. janúar 2020 08:00 Nú þegar nýtt ár er gengið í garð og aðeins hefur liðið frá illviðri því sem geisaði um vestan og norðanvert landið í desember síðastliðnum og innviðir samfélaganna að komast aftur í lag er rétt að horfa aðeins yfir það sem gerðist og draga af því lærdóm. Efst í huga manns er þó þakklæti til alls þess fjölda sjálfboðaliða á vegum Landsbjargar og Rauða Krossins sem unnu dag og nótt til að aðstoða samborgara sína. Ásamt fjölmennu liði annara viðbragðsaðila, lögreglu, bænda og starfsmanna veitufyrirtækja sem unnu sleitulaust, svo dögum skiptir, til að koma innviðum samfélagsins aftur af stað. Án þessa fólks hefðu afleiðingar þessa óveðurs getað orðið miklu meiri og verri. En hvaða lærdóm tökum við með okkur úr þessum aðstæðum. Ljóst er að ýmsir innviðir landsins eru ekki í stakk búnir til að takast á við aðstæður líkar þessum og munum þá um leið að þetta óveður er ekki einstakt. Slík veður hafa komið áður og munu koma aftur. Því verðum við að hefjast þegar handa við að gera þær úrbætur sem þarf til að heilu landsvæðin séu ekki án rafmagns og fjarskipta svo dögum skiptir. Og þær úrbætur þarf að vinna hratt og geta ekki flækst í nefndum á vegum stjórnkerfisins um ókominn tíma þar sem þær verða vegnar í töflureiknum á alla kanta í innbyrðis slag ráðuneyta. Við erum nefnilega að tala um heimili og lífsviðurværi fólks sem við ætlum að gera kleift að geta búið um allt land. Almannahagsmunir umfram hagsmuni einstaklinga eða félagasamtaka Mikilvægt er að ráðist verði strax í styrkingu flutningskerfis raforku þannig að það þjóni því hlutverki að geta flutt raforku skammlaust og lagnaleiðir séu ekki fastar í lagaflækjum um árabil. Hagsmunir heildarinnar séu settir í forgang en ekki sérhagsmunir stöku landeiganda sem jafnvel búa ekki á jörðum sínum. Fjarskiptakerfin þarf að styrkja og bæta þannig að þau standi af sér öll veður og nýta til styrkingar flutningskerfi fjarskipta sem þegar er til staðar en í eigu ýmissa aðila. Öryggisfjarskipti eiga alltaf að vera í forgangi og ekki sett undir mælistiku hagnaðar. Þá þarf að slaka á hagnaðarkröfum sem gerðar eru til orkufyrirtækja í opinberri eigu og þeim gert skylt og mögulegt að byggja upp varaafl þar sem þess er þörf. Styrkja þarf starfsemi þeirra í dreifðum byggðum með auknum mannafla og tækjum sem þarf til að takast á við erfiðar veðurfarslegar aðstæður. Slíkt þarf að vera til staðar og ef eitthvað er þá sýna þær aðstæður sem sköpuðust í illviðrinu sem gekk yfir landið, svo ekki verður um villst, nauðsyn þess að raforkuframleiðsla og dreifing raforku eiga að vera að mestu í höndum opinberra aðila í ljósi mikilvægis og til slíkra fyrirtækja er hægt að gera kröfur sem ekki á bara að mæla í arðsemi til eiganda. Miðhálendisþjóðgarður á ís Því væri gott að þingmenn finndu nú hjá sér þörf til að leggja fram þingsályktunartillögu um opinbera eigu okkar helstu orkufyrirtækja sem táknrænt skref í þessa átt. Þá er ekki síður mikilvægt að þingmenn allra flokka sammælist um að leggja til hliðar áætlanir um miðhálendisþjóðgarð að sinni. Byrjum nú einu sinni á réttum enda í stórum málum eins og þetta er. Skipuleggjum fyrst hvernig fara skal með flutningskerfi raforku um landið allt. Hvernig skal standa að virkjunum til að tryggja okkur rafmagn til framtíðar ekki síst með orkuskipti í huga og hvernig það getur svo farið saman með verndun náttúru landsins. Þegar þessar lausnir liggja fyrir þá skulum við aftur taka upp málefni miðhálendisþjóðgarðs. Þetta ætti að vera forgangsmál núna. Munum að loftslagsmál og náttúruvernd geta skarast og vinnubrögð við það þarf að vanda. Ísland á að vera í farabroddi þegar kemur að loftslagsmálum á heimsvísu og það verður ekki gert með því að takmarka möguleika til nýtingar á endurnýjanlegum orkukostum. Það er líka ljóst að mikil andstaða er meðal sveitarfélaga landsins við áætlanir um miðhálendisþjóðgarð eins og þær liggja fyrir nú og nauðsynlegt að hlusta vel á þau rök og taka tillit til þeirra. Allir sitji við sama borð En fyrst og síðast; drögum lærdóm af því sem betur má fara eftir óveður í árslok og gerum betur. Ráðumst í aðgerðir strax því það á að vera sameiginlegt markmið okkar sem Ísland byggjum að við sitjum öll við sama borð þegar kemur að grundvallar skilyrðum til búsetu. Gerum það öll saman því þannig ganga hlutir alltaf best þegar máttur hinna mörgu er virkjaður. Með ósk um gæfuríkt og gott ár 2020.Höfundur er ritari Framsóknarflokksins Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Orkumál Þjóðgarðar Mest lesið Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir Skoðun Ríkislögreglustjóri verður að víkja Einar Steingrímsson Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hagræn áhrif íþrótta og mikilvægi þeirra á Íslandi Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted skrifar Skoðun Frjósemisvitund ungs fólks Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Gervigreindarver í stað álvera! Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ríkislögreglustjóri verður að víkja Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir skrifar Skoðun Ísland 2040: Veljum við Star Trek - eða Star Wars leiðina? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld á bíla: Vondar fréttir fyrir okkur öll Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Hvar er skýrslan um Arnarholt? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fólkið á landsbyggðinni lendir í sleggjunni Margrét Rós Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Höldum fast í auðjöfnuð Íslands Víðir Þór Rúnarsson skrifar Skoðun Fjárfesting í fólki Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evran getur verið handan við hornið Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Leikskólinn og þarfir barna og foreldra á árinu 2025 Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig hjálpargögnin komast (ekki) til Gasa Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Vestfirðir gullkista Íslands Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Iceland Airwaves – hjartsláttur íslenskrar tónlistar Einar Bárðarson skrifar Skoðun 3003 Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar