KR án landsliðsmiðherjans næstu sex vikurnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2020 15:28 Hildur Björg Kjartansdóttir fékk tvö slæm höfuðhögg með stuttu millibili. Vísir/Daníel
Hildur Björg Kjartansdóttir, lykilmaður KR í Domino´s deild kvenna, verður ekki með liðinu næstu sex vikurnar vegna meiðsla en þetta kemur fram á heimasíðu KR. Hildur Björg hefur verið einstaklega óheppin undanfarið en hún fékk högg á höfuðið bæði í upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn og síðan aftur í leiknum gegn Haukum. Í leiknum á móti Haukum fékk hún hné í annað kinnbeinið í baráttu um lausan bolta sem varð til þess að tvær sprungur mynduðust. Fyrsta mat lækna var að hún myndi missa af restinni af tímabilinu en við nánari skoðun er möguleiki að hún nái úrslitakeppninni verði liðið í efstu fjórum sætunum. KR stelpur eru eins og er í öðru sæti í deildinni. Hildur var ekki með gegn Keflavík í síðustu umferð og þar tapaði KR-liðið með sex stigum. KR-stelpurnar taka á móti Breiðabliki í kvöld. KR er með 32 stig og sex stigum meira en Keflavík og Haukar og átta stigum meira en Skallagrímur. Keflavík, Haukar og Skallagrímur eiga aftur á móti öll inni leik á Vesturbæjarliðið. Hildur Björg Kjartansdóttir hefur verið einn besti leikmaður Domino´s deildar kvenna í vetur en hún er með 15,1 stig og 8,3 fráköst að meðaltali í leik. Í síðasta leik sínum fyrir fyrra höfuðhöggið var hún með 37 stig í sigri á Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitum bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ Sjá meira