Seinni bylgjan: „Einn versti dómur sem ég hef séð í mörg ár í íslensku deildinni“ Anton Ingi Leifsson skrifar 14. mars 2020 18:00 Atvikið umdeilda. vísir/skjáskot
ÍR vann frábæran sigur á ÍBV í vikunni en Eyjamenn höfðu tögl og haldir á leiknum í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik snérist taflið við. Undir lokin átti sér stað umdeilt atvik er Björgvin Hólmgeirsson skoraði mikilvægt mark fyrir ÍR en hann virtist taka ansi mörg skref án þess að Jónas Elíasson og Bjarni Viggóson, dómarar leiksins, dæmdu eitt né neitt. „Ég held að hann taki þarna einhver sex eða sjö skref og skorar þetta mark,“ sagði Ágúst Jóhannsson. „Þetta er rosalegt. Þetta eru átta skref!“ bætti Jóhann Gunnar Einarsson við. Logi Geirsson tók við boltanum: „Þetta er vendipunktur. Ég get fyrirgefið dómurum fjögur skref og mögulega fimm. En sex. Ég fer að efast um hvað er í gangi og það er ófyrirgefanlegt,“ sagði Logi og hélt áfram: „Ég fór að skoða staðsetninguna á dómurunum og þetta gerist beint fyrir framan Jónas. Svona sex til sjö metra frá honum. Bjarni getur ekki séð þetta. Það sá öll höllin þetta og allur bekkurinn og allir sem voru að horfa á þennan leik.“ „Hann hleypur bara með boltann. Þetta er einn versti dómur sem ég hef séð í mörg ár í íslensku deildinni,“ sagði Logi. Allt innslagið má sjá hér að neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Lokakaflinn í Eyjum
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Sjáðu Kristin Gunnar koma í mark: „Geðveikt skrítin tilfinning“ Sport Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu Körfubolti „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Körfubolti Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Fótbolti Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Íslenski boltinn Eiður Smári missir hvert metið á fætur öðru til ungra KR-inga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Sjá meira
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn