Þróttarar með óvæntan útisigur og dramatík á Ísafirði Ísak Hallmundarson skrifar 23. ágúst 2020 18:00 Þróttarar unnu óvænt í Breiðholti. fréttablaðið/ernir
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í dag. Þróttarar eru komnir í réttan gír eftir dapra byrjun á mótinu á meðan Leiknismönnum fatast flugið. Vestri og Víkingur Ólafsvík gerðu jafntefli í hörkuleik. Leiknir tók á móti Þrótti á DomusNova-vellinum í Breiðholti. Markalaust var í hálfleik en Vuk Oskar Dimitrijevic kom Leikni yfir í upphafi seinni hálfleiks á 47. mínútu. Gleði Leiknismanna var skammlíf, Gunnlaugur Hlynur Birgisson jafnaði metin fyrir Þróttara á 55. mínútu. Á 79. mínútu skoraði Oliver Heiðarsson fyrir Þrótt það sem reyndist sigurmarkið. Þróttarar að ná sér á strik og hafa unnið tvo af síðustu þremur leikjum sínum eftir aðeins eitt stig úr fyrstu átta leikjunum. Leiknir sem var á toppnum fyrir ekki svo löngu tapar stigum annan leikinn í röð. Það var boðið upp á háspennu þegar Vestri og Víkingur Ólafsvík mættust á Ísafirði. Vestri leiddi með tveimur mörkum í hálfleik eftir mörk frá Ivo Öjhage og Pétri Bjarnasyni. Ólsarar komu til baka og skoruðu tvö mörk á innan við tveimur mínútum, á 67. og 68. mínútu og voru þar að verki Gonzalo Zamorano og Harley Willard. Ivo Öjhage fékk síðan rautt spjald á 77. mínútu og á 82. mínútu kom Harley Willard Ólafsvík yfir. Seigir Vestfirðingar náðu hinsvegar manni færri að krækja í eitt stig úr leiknum þegar Daníel Agnar Ásgeirsson jafnaði á þriðju mínútu uppbótartíma og lokatölur í leiknum 3-3 jafntefli. Stöðutöfluna í deildinni má skoða hér.
Lengjudeildin Þróttur Reykjavík Mest lesið McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Arnar hitti úr öllu og Þorsteinn hamraði á markið Handbolti Stærsta tap tímabilsins beið Fram í Sviss Handbolti Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Fótbolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Sjá meira