Fyrsta liðið í sex ár sem tapar ekki í fyrstu tíu leikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2020 18:00 Hilmar Árni Halldórsson og Þorsteinn Már Ragnarsson fagna saman marki Stjörnunnar. Vísir/Bára Stjörnumenn gerðu kannski fjórða jafntefli í síðustu fimm leikjum í gærkvöldi en Garðabæjarliðið er enn taplaust í Pepsi Max deild karla. Stjörnuliðið lék í gær sinn tíunda leik á tímabilinu í Pepsi Max deildinni og liðið er enn taplaust. Stjarnan gerði þá 1-1 jafntefli á heimavelli á móti KA en þetta er fjórða 1-1 jafntefli Stjörnumanna í síðustu fimm leikjum. Stjarnan gerði líka 1-1 jafntefli við Víking, Gróttu og Fylki en vann FH 2-1 í fimmta leiknum sem stefndi líka í 1-1 jafntefli þar til að Halldór Orri Björnsson skoraði sigurmarkið með síðustu snertingu leiksins. Þetta er í fyrsta sinn síðan sumarið 2014, þar sem lið tapar ekki í fyrstu tíu leikjunum sínum í Pepsi Max deildinni. Sumarið 2014 fór Stjörnuliðið einmitt taplaust í gegnum allt tímabilið og vann sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil. FH-ingar töpuðu heldur ekki fyrr en í lokaleiknum á móti Stjörnunni. Þetta er líka í fjórða sinn á þessum sjö síðustu tímabilum þar sem Stjarnan er síðasta liðið í deildinni til að tapa
Stjörnumenn gerðu kannski fjórða jafntefli í síðustu fimm leikjum í gærkvöldi en Garðabæjarliðið er enn taplaust í Pepsi Max deild karla. Stjörnuliðið lék í gær sinn tíunda leik á tímabilinu í Pepsi Max deildinni og liðið er enn taplaust. Stjarnan gerði þá 1-1 jafntefli á heimavelli á móti KA en þetta er fjórða 1-1 jafntefli Stjörnumanna í síðustu fimm leikjum. Stjarnan gerði líka 1-1 jafntefli við Víking, Gróttu og Fylki en vann FH 2-1 í fimmta leiknum sem stefndi líka í 1-1 jafntefli þar til að Halldór Orri Björnsson skoraði sigurmarkið með síðustu snertingu leiksins. Þetta er í fyrsta sinn síðan sumarið 2014, þar sem lið tapar ekki í fyrstu tíu leikjunum sínum í Pepsi Max deildinni. Sumarið 2014 fór Stjörnuliðið einmitt taplaust í gegnum allt tímabilið og vann sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil. FH-ingar töpuðu heldur ekki fyrr en í lokaleiknum á móti Stjörnunni. Þetta er líka í fjórða sinn á þessum sjö síðustu tímabilum þar sem Stjarnan er síðasta liðið í deildinni til að tapa leik. Síðasta taplausa liðið í Pepsi Max deildinni undanfarin ár: 2020 Stjarnan 10 leikir (enn í gangi) 2019 ÍA (Tapaði í sjöunda leik) 2018 Breiðablik (Tapaði í sjötta leik) 2017 Stjarnan (Tapaði í sjötta leik) 2016 Stjarnan (Tapaði í sjötta leik) 2015 Breiðablik (Tapaði í tíunda leik) 2014 Stjarnan (Taplaust) 2013 KR (Tapaði í tíunda leik) 2012 ÍA (Tapaði í sjöunda leik) 2011 KR (Tapaði í sautjánda leik) 2010 Fram (Tapaði í sjötta leik)
Síðasta taplausa liðið í Pepsi Max deildinni undanfarin ár: 2020 Stjarnan 10 leikir (enn í gangi) 2019 ÍA (Tapaði í sjöunda leik) 2018 Breiðablik (Tapaði í sjötta leik) 2017 Stjarnan (Tapaði í sjötta leik) 2016 Stjarnan (Tapaði í sjötta leik) 2015 Breiðablik (Tapaði í tíunda leik) 2014 Stjarnan (Taplaust) 2013 KR (Tapaði í tíunda leik) 2012 ÍA (Tapaði í sjöunda leik) 2011 KR (Tapaði í sautjánda leik) 2010 Fram (Tapaði í sjötta leik)
Pepsi Max-deild karla Stjarnan Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ Sjá meira