Tveir nemendur smitaðir til viðbótar í Vallaskóla Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. september 2020 12:06 Vallaskóli er á Selfossi. Vísir/vilhelm
Tveir nemendur í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi hafa greinst með kórónuveiruna á síðustu tveimur dögum. Nemendurnir smituðust eftir að bekkjarfélagi þeirra, sem greindist með veiruna í byrjun mánaðar, mætti með einkenni í skólann í lok ágúst. Þetta staðfestir Guðbjartur Ólason skólastjóri Vallaskóla í samtali við Vísi. Alls eru því þrír nemendur skólans nú með staðfest smit. Báðir nemendurnir sem greindust til viðbótar voru í sóttkví en allur bekkurinn var skimaður fyrir veirunni. Umsjónarkennari og stuðningsfulltrúi fóru einnig í sóttkví vegna fyrsta smitsins. Ekki hefur þurft að senda fleiri í sóttkví vegna nýju smitanna. Nemandinn sem smitaðist fyrstur mætti ekki í skólann á mánudag og þriðjudag í síðustu viku en kom í fyrsta tíma á miðvikudag. Hann var fljótlega sendur heim vegna flensueinkenna. Þar áður hafði nemandinn síðast verið í skólanum föstudaginn 28. ágúst en ekki fengið einkenni fyrr en þá um helgina.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Árborg Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Starfsfólk og bekkjarfélagar í sóttkví eftir að nemandi í 7. bekk smitaðist Nemandi í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi greindist í gær með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. 4. september 2020 14:07 Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Banaslys við Fossá Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Fleiri fréttir Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Sjá meira
Starfsfólk og bekkjarfélagar í sóttkví eftir að nemandi í 7. bekk smitaðist Nemandi í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi greindist í gær með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. 4. september 2020 14:07