Lægðagangur og „hressilegt haustveður“ í vændum Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. september 2020 06:25 Haustlægðirnar verða allsráðandi í næstu viku, ef marka má veðurspár. Vísir/Vilhelm
Rigningar má vænta í flestum landshlutum nú í morgunsárið en dregur heldur úr vætu um og eftir hádegi. Það er „hægfara og dýpkandi“ lægð á Grænlandshafi sem stjórnar veðrinu í dag, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. „Lægðin þokast austur með suðurströnd landsins næsta sólarhring, en þá snýst jafnframt í vaxandi norðaustanátt, sem verður orðin allhvöss á Vestfjörðum í kvöld.“ Þá mun ganga á með talsverðu norðaustanhvassviðri og rigningu norðvestan til á morgun. Mun hægari vindur og úrkomulítið annars staðar. Dregur talsvert úr vindi og vætu um helgina „[…] en spáð er lægðagangi og hressilegu haustveðri í næstu viku, enda kominn sá tími árs þegar slíkra veðra er að vænta,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á föstudag: Norðaustan 13-18 m/s NV til, en annars fremur hæg breytileg átt. Rigning eða skúrir víða um land, en úrkomulítið á V-landi. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á SV-landi. Á laugardag:Norðan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Rigning á N-verðu landinu, en stöku skúrir syðra. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á SA-landi. Á sunnudag:Fremur hæg norðaustan- og austanátt og dálítil rigning SV-lands, en annars úrkomulítið. Milt veður syðra, en svalt fyrir norðan. Á mánudag:Líkur á vaxandi norðaustanátt með talsverðri rigningu á A-helmingi landsins, en annars úrkomuminna og fremur milt veður. Á þriðjudag:Útlit fyrir stífa norðanátt með rigningu á N-verðu landinu, en þurrviðri syðra og fremur svalt í veðri. Á miðvikudag:Snýst líklega í vaxandi austanátt og fer að rigna sunnan heiða og hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Sjá meira