Góður tími til að veiða urriða í Elliðavatni Karl Lúðvíksson skrifar 10. september 2020 10:00 Urriði
Það eru bara fimm dagar þangað til veiði lýkur í Elliðavatni en haustið er oft ansi drjúgt sérstaklega þegar það kemur að urriðanum. Urriðinn í vatninu tekur yfir sumarið oftast best í ljósaskiptunum og á haustin þegar það hallar snemma að degi fer hann fyrr af stað í ætisleit. Það einkennilega er að það eru afar fáir við vatnið þessa síðustu daga sem einmitt er oft besti tíminn fyrir urriðaveiði í vatninu. Þeir örfáu sem hafa verið að kíkja í vatnið hafa verið að fá flotta 2-3 punda urriða og séð nokkra stærri. Það er eins og venjulega best að veiða í húminu á kvöldin, nota straumflugur sem eru strippaðar í stuttum rykkjum , oftast bara á flotlínu með löngum taum en þar sem meira dýpi er í vatninu er oft ágætt að nota hægsökkvandi línu. Það virðist mest af urriðanum vera að veiðast við Þingnes og undan Elliðavatnsbænum en það hefur líka verið að veiðast flottir fiskar innst í Helluvatni. Þeir sem hafa verið á ferð í Helluvatni hafa líka greint frá því að stóra bleikjan er komin að einhverju leiti inn á hrygningarstaðina sína í Helluvatni og á lygnum degi má sjá þær mjög auðveldlega þar sem það er slegist um hrygningarbletti.
Stangveiði Mest lesið Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Batnandi útlit í Eyjafjarðará Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði 19 laxa dagur í Hrútafjarðará Veiði Gæsaveiði hefst á landinu í dag Veiði