.Real Madrid heimsótti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en Madridingar gerðu markalaust jafntefli við Real Sociedad í fyrstu umferð.
Federico Valverde kom Madridingum yfir snemma leiks en mörk frá Aissa Mandi og William Carvalho sáu til þess að heimamenn fóru með 2-1 forystu í leikhléið.
Snemma í síðari hálfleik var staðan orðin jöfn þar sem Emerson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 48.mínútu. Ekki skánaði hans dagur skömmu síðar þegar hann fékk að líta rautt spjald á 68.mínútu.
Einum fleiri tókst Real Madrid að knýja fram sigurmark en það kom af vítapunktinum þar sem Sergio Ramos reyndist öryggið uppmálað á 82.mínútu. Lokatölur 2-3.