Viðskipti innlent

Fækkun ferðamanna heldur aftur af hækkun í leiguverði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ferðamönnum hér á landi hefur fækkað rösklega vegna kórónuveirufaraldursins.
Ferðamönnum hér á landi hefur fækkað rösklega vegna kórónuveirufaraldursins. Vísir/Vilhelm

Verulega hefur hægt á þróun leiguverðs hér á landi á síðustu mánuðum. Fækkun ferðamanna hefur gert það að verkum að íbúðir sem voru nýttar til skammtímaútleigu, skiluðu sér að einhverju leyti á almennan leigumarkað með þeim afleiðingum að framboð jókst og þrýstingur á leiguverð minnkaði.

Fjöldi Airbnb íbúða á höfuðborgarsvæðinu er nú um 1600 en voru um 3500 þegar mest var. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag.

Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði leiguverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,2% milli júlí og ágúst. Til samanburðar hækkaði kaupverð fjölbýlis rúmlega þrisvar sinnum meira, eða um 0,7% á sama tíma.

Tólf mánaða hækkun leiguverðs mælist nú 1,4% og sambærileg hækkun á íbúðaverði er 5,2%. Frá því í mars á þessu ári hefur 12 mánaða hækkun íbúðaverðs mælst ofar sambærilegum hækkunum á leiguverði, en líkt og greint hefur verið frá í fyrri Hagsjám er talsverður kraftur í þróun íbúðaverðs um þessar mundir, á sama tíma og hægir á þróun leiguverðs.

„Á sumarmánuðunum júní-ágúst var að jafnaði þriðjungi fleiri leigusamningum þinglýst en á sömu mánuðum fyrir ári síðan. Mestu munaði í júní þegar 610 leigusamningum var þinglýst, eða 60% fleiri en í júní í fyrra. Mikil aukning á nýjum leigusamningum samtímis því sem hægir á verðhækkunum, bendir til þess að framboð hafi aukist af leiguhúsnæði, og meira en sem nemur aukningu í eftirspurn,“ segir í hagsjánni.

Líklegast skýringin á þeim sviptingum sem hafa átt sér stað á leigumarkaði sé að framboðið hafi hlutfallslega aukist mjög hratt á skömmum tíma þegar ferðamönnum fór að fækka og íbúðir sem nýttar voru til útleigu ferðamanna fóru í almenna útleigu.

Þegar ferðamannastraumurinn stóð sem hæst voru allt að 3.500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu skráðar til útleigu á vef Airbnb. Sá fjöldi hefur dregist saman og í ágúst voru um 1.600 íbúðir skráðar á vef Airbnb. Mánaðarlegt framboð Airbnb íbúða hefur því dregist saman um allt að 45% milli ára og nemur fækkunin allt að 1.400 íbúðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×