Innlent

36 greindust innan­lands og ellefu nú á sjúkra­húsi

Atli Ísleifsson skrifar
Skimað fyrir kórónaveirunni.
Skimað fyrir kórónaveirunni. Vísir/Vilhelm

36 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tuttugu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Fjögur virk smit greindust á landamærum.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru ellefu nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu.

582 manns eru nú í einangrun, samanborið við 551 í gær. Þá eru 1.697 í sóttkví í dag, samanborið við 1.747 í gær.

Af þeim 36 sem greindust innanlands í gær greindust 31 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og þrír við sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá greindist tveir við skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 145,4 en var 140,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 7,1, en var 6,3 í gær.

Nú hafa 2.769 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir.

Alls voru tekin 1.115 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 618 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 286 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×