Elvar fór á kostum og Bjarki skoraði sex gegn landsliðsþjálfaranum Anton Ingi Leifsson skrifar 6. október 2020 18:56 Elvar Örn Jónsson í leik með íslenska landsliðinu. Getty/TF-Images
Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk er Magdeburg skellti Fuchse Berlín, 32-22, í þýska handboltanum í dag. Eitt marka Ómars kom úr vítakasti. Gísli Þorgeir Kristjánsson komst ekki á blað hjá Magdeburg en liðið er með tvö stig eftir fyrstu tvo leikina. Bjarki Már Elísson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Lemgo en hann var markahæsti leikmaður liðsins með sex mörk er Lemgo tapaði á útivelli fyrir Melsungen, 27-21. Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þórður Guðmundsson er þjálfari Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson er á mála hjá Melsungen. Hann komst ekki á blað fyrir liðið sem er með fjögur stig en Lemgo er með tvö stig. Oddur Grétarsson skoraði þrjú mörk, þar af tvö af vítapunktinum, er Balingen tapaði fyrir FRISCH AUF! Göppingen 28-23. Janus Daði Smárason skoraði eitt mark fyrir Göppingen. Balingen án stiga en Göppingen með tvö stig en þetta var þeirra fyrsti leikur. Alexander Petersson skoraði tvö mörk og Ýmir Örn Gíslason eitt er Rhein Neckar Löwen vann tveggja marka sigur, 26-24, á Eulen Ludwigshafen. Ljónin eru með fjögur stig. Elvar Örn Jónsson var markahæsti maður Skjern með sex mörk er Skjern vann þriggja marka sigur, 29-26, á Lemvig-Thybøren. Staðan var jöfn í hálfleik, 14-14. Skjern með sjö stig eftir sex leiki.
Þýski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Enski boltinn Fleiri fréttir ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til Sjá meira