Forsætisráðherra Mið-Asíuríkisins Kirgistans hefur látið af embætti í kjölfar mikilla mótmæla sem blossuðu upp eftir umdeildar þingkosningar í landinu.
Glundroði ríkir nú í stjórnmálum landsins en búið er að ógilda nýafstaðnar kosningar þar sem stuðningsmenn forseta landsins hlutu góða kosningu. Stjórnarandstæðingar sögðu brögð hafa verið í tafli og hófust mikil mótmæli í kjölfarið.
Stjórnvöld í Rússlandi og Kína hafa lýst yfir áhyggjum af ástandinu. BBC segir frá því forsætisráðherrann Kubatbek Boronov sé nú hættur og hafi mótmælendur skipað Sadyr Japarov í hans stað, en Japarov hafði nýverið verið sleppt úr fangelsi.
Mótmælendur höfðu áður ruðst inn í þinghúsið og bárust í gærmorgun fréttir af því að kveikt hafi verið í hluta þess.
Fjölmennt lið mótmælenda komu saman á götum höfuðborgarinnar Bishkek í morgun þar sem þess var krafist að forsetinn, Sooronbai Jeenbekov, yrði ákærður fyrir embættisbrot. Forsetinn gaf í skyn í gær að hann væri reiðubúinn að stíga til hliðar.
Í kosningunum var settur upp ákveðinn þröskuldur sem varð til þess að aðeins fjórir flokkar af sextán sem voru í framboði komust inn á þing. Af þeim fjórum voru þrír hliðhollir forsetanum.
Tveimur forsetum í Kirgistan hefur verið steypt af stóli á síðustu fimmtán árum.