Langdræg flugskeyti voru meðal þeirra vopna sem sýnd voru á hersýningu í Norður-Kóreu sem haldin var í nótt, aðfaranótt laugardags, til að fagna því að 75 ár eru liðin frá því að verkamannaflokkur Norður-Kóreu var stofnaður.
Í Norður-Kóreu er það til siðs að nýjustu vopn séu sýnd á slíkum hersýningum og segja sérfræðingar að flugskeytin, sem sýnd voru í nótt, gætu drifið á milli heimsálfa.
Þetta er fyrsta hersýningin sem haldin er í landinu í tvö ár og hafa flugskeyti, líkt og þau sem sýnd voru á hersýningunni í nótt, ekki verið sýnd á hersýningum landsins frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Jong-Un leiðtogi Norður-Kóreu héldu sinn fyrsta friðarviðræðufund árið 2018.

Hvorki erlendar fréttveitur né erlendir aðilar fengu að fylgjast með viðburðinum og hafa spekingar því þurft að rýna í fréttir og myndefni sem gefið hefur verið út af ríkismiðli Norður-Kóreu.
Kim sagði í ræðu sem hann flutti á viðburðinum að landið muni halda áfram að „styrkja“ her sinn til „sjálfsvarnar og varnaðaráhrifa.“

Þá sagðist hann einnig þakklátur því að engir norðurkóreumenn hafi smitast af Covid-19 sjúkdómnum.
„Ég óska öllum þeim sem berjast við þennan vonda vírus á heimsvísu góðrar heilsu,“ sagði Kim.
Sérfræðingar telja afar ólíklegt að veiran hafi ekki borist til landsins en gripið hefur verið til harðra aðgerða í Norður-Kóreu til að fyrirbyggja að hún berist til landsins. Landamærum ríkisins var lokað í janúar til þess að koma í veg fyrir að veran bærist frá nágrannaríkinu Kína og hafa fregnir borist af því að yfirvöld hafi heimilað landamæravörðum að skjóta alla þá sem nálgast landamærin á færi.
Í síðasta mánuði baðst Kim afsökunar á því að 47 ára gamall suðurkóreumaður hafi verið skotinn til bana af hersveitum Norður-Kóreu. Hann fannst af hersveitum landsins í sjónum í lögsögu Norður-Kóreu og var hann skotinn til bana og síðan kveikt í líkinu.