Fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó handtekinn í Bandaríkjunum Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2020 07:55 Mexíkóski hershöfðinginn Salvador Cienfuegos gegndi embætti varnarmálaráðherra á árunum 2012 til 2018. gETTY
Mexíkóski hershöfðinginn Salvador Cienfuegos gegndi lykilhlutverki í stríði mexíkóskra yfirvalda gegn eiturlyfjahringjum í tíð sinni sem varnarmálaráðherra landsins á árunum 2012 til 2018. Erlendir fjölmiðlar segja nú að bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) hafi handtekið Cienfuegos á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles í gær. New York Times segir frá því að Cienfuegos sé grunaður um peningaþvætti og að tengjast fíkniefnaviðskiptum. Blaðið segir að Cienfuegos sé fyrsti háttsetti einstaklingurinn innan mexíkóska hersins sem handtekinn er á bandarískri grundu vegna spillingar sem tengist fíkniefnaviðskiptum. Haft er eftir Raúl Benítez, sérfræðingi á sviði mexíkóskra hermála, að handtakan muni hafa miklar afleiðingar í för með sér innan mexíkóska hersins. Cienfuegos var varnarmálaráðherra í forsetatíð Enrique Peña Nieto. Fjöldi fólks sem sat í ríkisstjórn og flokki Nieto sæti nú ásökunum um að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Í embættistíð Cienfuegos var mexíkóski herinn sakaður um að hafa drepið fjölda fólks utan réttar, þar á meðal í Tlatlaya árið 2014 þar sem 22, sem grunaðir voru um að tengjast eiturlyfjahring, voru teknir af lífi.
Bandaríkin Mexíkó Mest lesið Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Erlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Sjá meira