33 greindust innanlands Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2020 10:55 Á fimmta þúsund kórónuveirusmit hafa greinst á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm
Alls greindust 33 með kórónuveiruna innanlands í gær. Tuttugu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, eða 61 prósent. Þrettán voru ekki í sóttkví. Fram kemur í uppfærðum tölum á Covid.is að alls séu nú 21 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Fram kom á upplýsingafundi klukkan 11 að af þeim þremur sem eru á gjörgæslu er tveir á öndunarvél. Í gær voru 23 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu. Sautján smit greindust á landamærum í gær – fjögur virk smit og svo er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilfellum þrettán. 1.159 manns eru nú í einangrun, samanborið við 1.206 í gær. Þá eru 2.542 í sóttkví í dag, samanborið við 2.531 í gær. Af þeim 33 sem greindust í gær, greindust 28 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni hjá Landspítalanum eða Íslenskri erfðagreiningu, en fimm greindust eftir svokallaða sóttkvíar- eða handahófsskimun. Þriðja bylgjan. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 248,7 en var 266,2 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 22,9, en var 21,8 í gær. Nú hafa 4.268 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Ellefu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir. Alls voru tekin 1.009 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 640 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. 538 sýni voru tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og þá voru 31 sýni tekið í annarri skimun hjá ÍE. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Innlent Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Veður Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Innlent Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Innlent Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Innlent Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Innlent Fleiri fréttir Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ „Gæsahúð, án gríns“ Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Ók á sjö kindur og drap þær Ekki púað á Snorra „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Sjá meira