Tjáningin óendanlega verðmætari en starfið um borð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. október 2020 22:04 Arnar Gunnar ræðir um reynslu sína í kvöldfréttum RÚV. RÚV
21 árs háseti á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni, þar sem nær allir smituðust á Covid-19 á þriggja vikna túr, segir hegðun útgerðarinnar í veikindum skipverja í takti við fyrri hegðun gagnvart starfsmönnum hvað öryggi og heilsu starfsmanna snertir. Hann óttast ekki að missa starfið vegna orða sinna því tjáning hans á því sem á gekk skipti meira máli en starf hans um borð. Lögreglan á Vestfjörðum skoðar nú hvort ástæða sé til að rannsaka málið. Tuttugu og tveir af 25 skipverjum sýktust af kórónuveirunni í hópsmiti sem kom upp um borð fljótlega eftir að lagt var á haf út. Þrátt fyrir það hélt skipið áfram veiðum í túr sem tók þrjár vikur. Verkalýðsfélag Vestfjarða og Sjómannasambandið hafa gagnrýnt stjórnendur Hraðfrystihússins Gunnvarar harðlega. Skipverjum hafi meðal annars verið meinað að tjá sig um veikindi sín meðan á þeim stóð. Arnar Gunnar Hilmarsson er háseti á Júlíusi Geirmundssyni, farið fimmtán túra með skipinu og meðal þeirra sem veiktust af Covid-19 á túrnum umdeilda. Hann ræddi vikurnar þrjár og viðbrögð útgerðarinnar í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Grjótharður píndi sig á þrjár vaktir fárveikur „Sá sem varð veikastur er einn harðasti maður, sem ég veit um, og hann lét sig hafa það í einhverjar þrjár vaktir að vinna veikur. Svo var hann einfaldlega orðinn svo slæmur að hann bara gat það mögulega ekki. Það var bara erfitt að horfa upp á hann færa sig upp af bekknum og upp í sjúkraklefa,“ sagði Arnar Gunnar í kvöldfréttum RÚV. 22 af 25 skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni reyndust smitaðir af Covid-19.Vísir/Hafþór Júlíusi Geirmundssyni var siglt til hafnar á Ísafirði eftir þrjár vikur á sjó. Vegna brælu og þar sem taka þurfti olíu. Í leiðinni fóru heilbrigðisstarfsmenn um borð og skipverjarnir fóru í kórónuveirupróf. „Þannig að í rauninni var skimunin þriðja í forgangsröðinni,“ segir Arnar. Ekki var beðið eftir niðurstöðu úr sýnatöku í landi, þrátt fyrir mikil veikindi um borð, heldur siglt á haf út. Þegar niðurstöður bárust var togaranum snúið við en skipverjum tilkynnt að þeir ættu að klára aflann og hefja lokaþrif á skipinu. „Ljóta helvítis yfirklórið“ Útgerðin hefur viðurkennt í yfirlýsingu að eftir á að hyggja hefði átt að fara fyrr í land. Þeir sögðust hafa verið í sambandi við sóttvarnalækni á meðan siglingu stóð en skýrðu þau samskipti ekki nánar. Hákon Blöndal, fyrsti vélstjóri á Júlíusi Geirmundssyni, brást harðorður við yfirlýsingu útgerðarinnar. „Þetta er ljóta helvítis yfirklórið og drullumokstur. Hérna er ekki öll sagan sögð og menn þurfa að taka sig saman í andlitinu og viðurkenna mistök. við grun um Covid smit um borð ber skipstjóra að hafa samband við landhelgisgæslu Íslands sem ákveður næstu skref. í þessu tilfelli var verkferlum ekki fylgt og áhöfn fékk aldrei að njóta vafans og var lögð í mikla áhættu!“ Gæslan heyrði ekkert Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar, hefur ekki svarað spurningum fjölmiðla um hvers vegna ekki var haldið til hafnar. Þá vildi Sveinn Geir Arnarsson skipstjóri ekki tjá sig við Vísi í vikunni. „Ég hef ekkert að segja,“ sagði Sveinn Geir. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að ekki hefði verið haft samband við Landhelgisgæsluna. Gæslan hafi fengið upplýsingar um að 19 skipverjanna væru smitaðir síðastliðinn mánudag, eftir að skipið var komið til hafnar. Þá hafði skipið verið um það bil þrjár vikur á sjó. Eftir að skipverjarnir fóru í sýnatöku þótti ekki ástæða til að bíða eftir niðurstöðum heldur var siglt aftur á haf út. Tilgangur stoppsins var olíufylling en bræla var á miðum og því hlé á veiðum.Vísir/vilhelm Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, var í sambandi við skipstjóra meðan á túrnum stóð. „Ef það er grunur um smitsjúkdóm þá ber að fara eftir einhverjum ákveðnum verkferlum. Þeir hringdu í mig og báru þetta undir mig og mín skilaboð hafa alltaf verið skýr, frá upphafi faraldursins, að ef fólk er með einkenni þá þarf það að koma í sýnatöku og það að eiga samtal við mig um að staðfesta að þetta sé kvef er bara ekki til. Fólk verður að mæta í sýnatöku. Það er enginn munur á covid og kvefi,“ sagði Súsanna í Reykjavík síðdegis í gær. Tjáningin verðmætari en starfið um borð Arnar Gunnar háseti segir að ekki tíðkist á sjó að mótmæla orðum skipstjórans. Þannig sé menningin á sjó. Hann segir alvarlegasta brot útgerðarinnar á skipverjum að neyða þá til vinnu í erfiðum veikindum. Hann fer ófögrum orðum um útgerðina. Heilbrigðisstarfsmenn um borð í Júlíusi Geirmundssyni. Eftir að niðurstöður lágu fyrir úr Covid-19 prófunum, og ljóst að fjölmargir voru sýktir, var ákveðið að snúa aftur til hafnar. Skipverjunum var sagt að hefja tiltekt og ganga frá afla, þótt þeir væru margir hverjir veikir.Vísir/Hafþór „Hegðun HG í þessum kórónuvírusskandal núna er í nákvæmu samræmi við hegðun fyrirtækisins gagnvart starfsmönnum hvað varðar öryggi og heilsu starfsmanna í fortíðinni,“ sagði Arnar á RÚV. Hann óttast ekki að missa vinnuna. Tjáning mín á málinu er óendanlega verðmætari en starf mitt þarna um borð. Ráðgjafafyrirtæki aðstoðar útgerðina Fólk keppist við að hrósa Arnari Gunnari fyrir hugrekki sitt og frásögn á samfélagsmiðlum í kvöld. Þar á meðal er fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. „Þekki þig ekki neitt Arnar en langar til að hrósa þér í hástert fyrir vasklega framgöngu í frétt kvöldsins. Skýr, yfirvegaður og drulluflottur. Það þarf hugrekki til að láta ekki drumbana beygja sig.“ Helgi Seljan fréttamaður RÚV vekur athygli á því á Twitter að skipverjar hafi enn ekki heyrt neitt frá útgerðinni, ef frá eru taldar yfirlýsingar á vef útgerðarinnar. Þeim hafi þó verið tilkynnt í gær að ráðgjafarfyrirtækið Attentus hafi verið fengið til þess að greina stöðuna. „Markmið vinnunnar er að draga lærdóm og finna leiðir til að efla viðbragð og liðsanda til framtíðar í góðri samvinnu við starfsfólk,“ segir í skilaboðum útgerðarinnar til starfsmanna. Skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni hafa enn ekki heyrt múkk í útgerð skipsins, utan yfirlýsinga á vef fyrirtækisins. Í gær tilkynnti útgerðin áhöfninni þetta. (Kunnuglegt) #guðbjargarþeimseþrannsakasigsjálfa #liðsandinn pic.twitter.com/P2g5Mswxw3— Helgi Seljan (@helgiseljan) October 24, 2020
Sjávarútvegur Ísafjarðarbær Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hópsmit á Júlíusi Geirmundssyni Tengdar fréttir Lögregla metur hvort rannsaka eigi hópsýkinguna á togaranum Lögreglan á Vestfjörðum skoðar nú hvort ástæða sé til að rannsaka mál skipverjanna um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni. 24. október 2020 11:47 Umdæmislæknir sóttvarna hefði viljað hafa skipið nálægt höfn Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum segir að hún hefði viljað hafa frystiskipið Júlíus Geirmundsson nálægt höfn eftir að skipverjar tilkynntu henni um grun um kórónuveirusmit um borð. 23. október 2020 23:33 Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23. október 2020 16:38 „Þetta er ljóta helvítis yfirklórið og drullumokstur“ Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, segir tilmæli sín mjög einföld þegar komi að einkennum vegna Covid. Skipti þá engu hvort menn séu á sjó eða í landi. Menn eigi að koma í sýnatöku. 22. október 2020 12:39 Segja að rétt hefði verið að snúa Júlíusi Geirmundssyni til hafnar fyrr Kalla hefði átt Júlíus Geirmundsson til hafnar fyrr og segja alla áhöfn skipsins í skimun fyrir Covid-19, miðað við þá vitneskju sem nú liggur fyrir. Þetta kemur fram í yfirlýsing á vef Hraðfrystihússins Gunnvarar, sem gerir út frystitogarann. 21. október 2020 23:00 Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Erlent Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Erlent Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Erlent Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Erlent „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Innlent Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Erlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Fleiri fréttir Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Skútu rak alla leið frá Englandi að Skaftafellsfjöru Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Sjá meira
Lögregla metur hvort rannsaka eigi hópsýkinguna á togaranum Lögreglan á Vestfjörðum skoðar nú hvort ástæða sé til að rannsaka mál skipverjanna um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni. 24. október 2020 11:47
Umdæmislæknir sóttvarna hefði viljað hafa skipið nálægt höfn Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum segir að hún hefði viljað hafa frystiskipið Júlíus Geirmundsson nálægt höfn eftir að skipverjar tilkynntu henni um grun um kórónuveirusmit um borð. 23. október 2020 23:33
Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23. október 2020 16:38
„Þetta er ljóta helvítis yfirklórið og drullumokstur“ Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, segir tilmæli sín mjög einföld þegar komi að einkennum vegna Covid. Skipti þá engu hvort menn séu á sjó eða í landi. Menn eigi að koma í sýnatöku. 22. október 2020 12:39
Segja að rétt hefði verið að snúa Júlíusi Geirmundssyni til hafnar fyrr Kalla hefði átt Júlíus Geirmundsson til hafnar fyrr og segja alla áhöfn skipsins í skimun fyrir Covid-19, miðað við þá vitneskju sem nú liggur fyrir. Þetta kemur fram í yfirlýsing á vef Hraðfrystihússins Gunnvarar, sem gerir út frystitogarann. 21. október 2020 23:00